föstudagur, maí 27, 2011

Það eru 10 ár frá því að ég útskrifaðist sem stúdent. Það finnst mér langur tími, réttur þriðjungur af ævi minni og ótvírætt sá allra stysti af þriðjungunm þremur. Þann fyrsta lærði ég að ganga og tala og ýmislegt annað nytsamlegt, í öðrum þriðjungnum lærði ég margföldunartöfluna og ýmislegt annað misnytsamlegt, þann þriðja lærði ég eitthvað líka en gleymdi því jafnóðum. Til dæmis eyddi ég heilum vetri í að læra gríska og rómverska sögu en þekki ekki grísk goð frá rómverskum keisurum lengur - það eina sem ég man er að mér fannst ógeðslega fyndið að stríða Þórhildi á að kallinn framan á bókinni væri líkur strák sem hún var skotin í. Svo lærði ég líka Sonatorrek utanbókar en kann bara að slá mér á lær og syngja: "það mælti mín móðir..." og herma þannig eftir Braga maga íslenskukennara ... ég gæti ekki diffrað þó mér væri borgað fyrir það og þaðan af síður stillt efnajöfnu.

Af þessu get ég bara ályktað eitt: því lengur sem ég sit á skólabekk því minna man ég! Það mátti ekki seinna vera að ég áttaði mig á þessu - 6 mánuðir eftir af 21. skólaárinu.

Mér er boðið á tvö endurfundamót í sumar en á hvorugt kemst ég. Held það sé kannski bara eins gott þar sem ég hefi ekki gert neitt síðastliðin 10 ár nema að troða einhverju inn um annað eyrað á mér og hleypa öðru út úr hinu. Það er samt ein bót í þessu máli. Ég get auðveldlega þóst vera 20 ára og byrjað þriðja áratuginn upp á nýtt. Ekki svo að skilja að ég sé hrædd við að eldast, ég þrái ekkert heitar en nokkrar hrukkur til að gefa mér virðulegra yfirbragð - en mér finnst bara að ég hefði getað nýtt tímann aaaðeins betur.

Í tilefni af 10 ára stúdentsafmælinu sver ég og sárt við legg að þegar að þessu skólaári lýkur þá ætla ég aldrei, aldrei aftur að setjast á formlegan skólabekk (ég fer kannski á nokkur svona endurmenntunarnámskeið og svoleiðis) og hana nú. Annan þriðja þriðjunginn ætla ég nota til að vinna að einhverju gagnlegu fyrir gjörvalla heimsbyggðina - vitið þið um einhvern sem vill ráða konu eins og mig sem kann að tala, ganga og margfalda?

3 Ummæli:

Blogger Ólöf Halldora sagði...

Ágústa þú ert yndisleg. Þú mátt þó ekki gleyma að þið Þórhildur kunnið ennþá þýsk ljóð utanbókar sem mér finnst alveg magnað. Það gerist þó ekki fyrr enná fimmta bjór...

7:41 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Tek undir með Ólöfu. Þú ert yndisleg Ágústa og þó svo þú fengir engan til að ráða þig í vinnu upp á þessa uppgefnu kunnáttu sem ég veit reyndar að er margfalt meiri þá efast ég ekki um að þú gætir unnið fyrir þér á eigin vegum með skrifum.
Hjartans bestu kveðjur,
Sigga.

4:39 e.h.  
Blogger Tóta sagði...

Purple peopleeater!

11:37 f.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim