Það er alveg ágætt að vera komin aftur til Bretlands, eða Skotlands skyldi ég segja. Nú eru þingkosningar á skoska þingið nýafstaðnar og skoski þjóðarflokkurinn náði miklum meirihluta. Það þykir því liggja fyrir að á stjórnartíma þessarar ríkistjórnar kjósi Skotar um hvort þeir vilji vera sjálfstæðir eður ei. Skotland sem áður var rautt að miklum meirihluta er nú orðið blátt og það sama má segja um England (þó blái liturinn þar tákni allt annan flokk) - en hvað sagði málshátturinn: "Blátt er betra en ekkert". Fussumsvei. Sé í fréttum að heiman að Þráinn Bertelsson kallar bláingjana á Íslandi "fastistapakk", betur hefði farið á að nota hið ágæta, íslenska orð "frjálshyggjufantur" en það er ólíklegt að Þráinn hafi gefið orðavali mikinn gaum áður en hann jós úr sínum skálum.
Ritstörf ganga ágætlega, ég skrifa mikið og stroka mikið út. Tvö skref áfram, eitt afturábak virðist ætla að verða ferðahraðinn. Á morgun fer ég á fund með doktorsnefndinni þar sem ákveðið verður hvort raunhæft sé að ég skili á réttum tíma og ég hef einsett mér að vera bjartsýn og halda því fram að það séu allar líkur á því.
Annars er ekki mikið að frétta héðan, nema jú. BBC 4 er með íslenska þemadaga. Þeir ætla að sýna einhverja heimildamynd um konu sem gekk Laugarveginn þ.e frá Landmannalaugum og inn í Þórsmörk (ekki frá Snorrabraut og niður í Bankastræti), Jar city myndina eftir bók Arnaldar (sem ég man ekki hvað heitir á íslensku), Næturvaktina og einhverja teiknimyndaseríu um konung norðursins. Það verður fróðlegt að sjá hvernig Georg Bjarnfreðarson gengur í Bretann. Annars er svo mikið sjónvarp hér að það verður ábyggilega vonlaust að segja til um það nema hann slái þeim mun betur í gegn. Ég segi ykkur þá frá því seinna.
En nú er komið að því að byrja á kafla fimm dimmalimm!

3 Ummæli:
Ég held að þetta sé mjög góður ferðahraði í ritstörfum, gefur til dæmis rúm til þess að strika út orð eins og fasistapakk og setja inn frjálshyggjufantur í staðinn.
lovjú!
sammála síðasta ritmanni!
knús í hús
tóta
Til hamingju með nýju íbúðina ykkar. Þú átt eftir að rúlla þessari ritgerð upp, ég er klár á því.
Bið að heilsa Chris
Halli
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim