Ég er ekki prinsessa. Einu sinni þegar ég var í sumarbústað í Húsafelli svaf ég heila helgi ofan á dauðum þresti. Í gærnótt svaf ég ofan á viðarlús og kramdi hana í svefni sem ég velti mér til og frá í gammosíunum og slóvensku ullarskokkunum sem hafa tekið við af sumarnáttfötunum. Held að hvort tveggja, þrestir og lýs séu fyrirferðameiri en baunir og margfallt ógeðfelldari. sveitattan skítalykt!

4 Ummæli:
OJJ, fannstu ekkert fyrir þrestinum?
Hvað eru svona viðarlýs eiginlega stórarar?
Kv. Hildur
við hefðum nú haft gaman af að sjá þig í gammosínum og ullarskokkum en viðarlúsina langar mig ekkert að sjá. mamma biður þig að taka ekki með þér viðarlýs á Helgafell, þá gæti orðið skrambi kalt á felli!
Æji!! þú ert svo óheppin Ágústa mín...fyrst þröstur og síðan viðarlús..uff...hvað dýr verður næst fyrir valinu.
kannski fíll?
ég man þegar þú svafst á þrestinum, en hvað er viðarlúsin stór? - er þetta bara meðalmús?
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim