mánudagur, nóvember 22, 2010

Í dag er akkúrat mánuður þangað til að ég vakna á Helgafelli. Kannski ég hlaupi yfir götuna og kaupi malt og appelsín og piparkökur í Vesturbúð og setjist svo í stólinn hennar ömmu og prjóni.
Ég hlakka svo til að ég get vart á mér heilli tekið. Mig dreymir nótt eftir nótt að ég sé á Íslandi. Ég er búin að fara einu sinni á skíði upp á Langjökul, dandalast á Eyrarbakka og fara í kaffi á Kárastíginn ... en svo vakna ég í rigningunni í Aberdeen.
Nú er sjötti veturinn minn í Bretlandi hálfnaður svo maður skyldi ætla að það væri farið að sjatna á heimþránni en ég hef aldrei áður verið í burtu í heilt ár. Ég er samt viss um að áður en að Íslandsdvölinn lýkur verði ég komin með heimþrá í hina áttina, heimþrá sem einu sinni hét útþrá, en maður getur varla verið með útþrá heim til sín. En það eru náttúrulega forréttindi, að eiga heima á tveimur stöðum.

Hver vill koma með mér í skíðaferð til Ólafsfjarðar og Siglufjarðar og prófa nýju Héðinsfjarðargöngin? Við getum byrjað á Akureyri og farið um Dalvík og farið svo hina leiðina heim og komið við á Héraðsskjalasafni Skagfirðinga á Sauðárkróki.
Þeir sem vilja ekki fara á skíði geta hangið á Síldarminjasafninu. Ég skal smyrja nestið!

2 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég er sko alveg til í að koma í svona ferðalag með þér
Hlakka mikið til eftir mánuð
Kv. Hildur

4:31 e.h.  
Blogger Ólöf Halldora sagði...

Ég hlakka líka mikið til að dandalast með þér á Bakkanum. Sjáumst eftir mánuð.

7:43 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim