Svo margt sem fólk gerði í gamla daga hljómar svo kósý. Á topp fjórum listanum er:
1) Hlusta á húslestra
2) Sitja með stórfjölskyldunni uppi í rúmi og prjóna
3) Slóra uppi á vinnukonulofti
4) Borða nesti í smalakofa
Ég kann eina lýsingu á íslensku matarboði frá 1856 og hún er svona:
"Then followed more speaches - a great chinking of glasses - A Babel of conversation - a kind of dance round the table ... a hearty embrace from the Governor - and finally silence, daylight, and fresh air, as we stumbled forth into the street. .. Fitz said it was twenty-two o´clock, but by this time he had reached that point of enlargement of the mind, and development of the visual organs, which is expressed by the term "seeing double"" Skemmtilegt!
En margt var ábyggilega leiðinlegt. Vont að vakna eftir svona málsverð og eiga ekkert TREO og enga panódíl. Held samt að allra leiðinlegast hafi verið að taka mó, rista torf og raka á engjum. Kannski var það jafnvel leiðinlegra en að ryksuga, vaska upp matvinnsluvélina og taka afrit af harðadrifinu sem án efa er með leiðinlegri nútímaverkum.
Hvað haldið þið um það?

4 Ummæli:
Slóra uppi á vinnukonulofti hljómar vel.
Kv. Halli
Ég held að það hafi margt verið mikið skemmtilegra í gamla dag heldur en núna en líka mikið erfiðara.
Eigum við að slóra uppi á lofti á Helgafelli þegar þú kemur heim?
Kv. Hildur
Húslestrar - ekkert sjónvarp
Prjóna - engin tölva
Slóra uppi á vinnukonulofti - slóra í vinnunni ( á fullu kaupi)
Borða nesti í smalakofa - fara út að borða. Svona lítur samanburðurinn út í mínum augum og mér finnst hann að mörguleiti nútímanum í hag :)
mér finnst fortíðin hafa yfirburðasigur á nútímanum í þessum samanburði. kannski heillar mig vinnukonuloftið bara af því ég fæ ekkert kaup í vinnunni minni... og nestið í smalakofanum af því það er svo barnvænt...
anyways, það er að byrja húslestur :)
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim