Takk fyrir þolinmæðina og einbeitninguna! Myndin af þeim stöllum var tekin á dansgólfinu í Ástukoti þar sem ekkert meira var í gangi en taumlaus gleði og kátína, sem brást svona út hjá frænkunum. Það er ekki á hverjum degi sem við hittumst og það má með sanni segja að flestar áttum við bágt með okkur og við komumst ansi nærri því að spila út!
Ég fer ekki fet fyrr en ég kem til Íslands um jólin. Ég þarf hinsvegar að þvo og pakka fjársjóðnum, t.d. þessum 100 ára gamla ullarsokk. Er þetta ekki bara garðaprjón? Og svo er enginn hæll - er þetta er svona óþolandi þvottapokasokkur? Kannski Vesturfararnir hafi gleymt hvernig maður prjónar hælstall og -tungu en ég er nú engin prjónajóna ...

2 Ummæli:
Þetta ér örugglega þvottapokasokkur, það er ekki einu sinni almennileg úrtaka í tána. - En hvar í veröldinni hefur þú náð í þetta orðafar "hælstall- og tungu" ég held ég viti hvað þú átt við, en mér finnst þú rosa prjónakonuleg í tali.
Bestu kveðjur að sinni,
sigga mos
þú verður að passa þig að fara ekki að nota svona fornmál í daglegu tali þá skilur þig enginn.
Kennirðu Chris svona íslensku?
Kv. Hildur
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim