miðvikudagur, desember 01, 2010

Það slær nú á heimþránna þegar það snjóar upp á hvern einasta dag. Eilífar veðuraðvaranir, lokaðir flugvellir og kaós. Þá er nú gott að geta farið í ullarsokkana og gönguskóna og arkað af stað óhrædd við hálku og kóf (þ.e. verið hrokafullur Íslendingur sem kann að labba í hálku;)). Svo er aðventuljósið líka komið á sinn stað og jólaserían svo þetta er orðið ágætt, alveg ágætt.

Kristinn Hrafnsson var í viðtali í fréttunum í fyrradag. Ég saknaði hans nú ekkert sérstaklega en alltaf gaman að sjá landa á skjánum. Mér fannst hann vera klipptur út úr fornsögu. Hann talaði bara í framsögu hætti, án aukasetninga og algerlega brá sér undan að svara siðferðislegum spurningum fréttastjórans um lekann frá Bandaríkjunum. Hann er dökk hetja, held ég. Já svona er víst Ísland í dag, í Skotlandi, eða þannig.

Ég hlakka samt enn til að koma heim. Tuttugu dagar sem þýðir að ég get byrjað að telja tær og fingur! Bara verst hvað ullarsokkarnir eru þykkir...

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Vertu bara velkomin þegar þú kemur heim en skildu snjóinn eftir í Aberdeen því hér er fimm stiga hiti og logn.

Ertu í sprengdum ullarsokkum ?

Halli

4:44 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim