föstudagur, október 01, 2010


Það var ofsalega gaman á ferðalaginu, í Kanada gekk ráðstefnan vel og ég heimsótti stórbrotin Klettafjöllin. Það var samt langskemmtilegast í Cambridge. Ljósmyndin að ofan er meira en þúsund orða virði. Ég er enn með smá harðsperrur í maganum.
Það er komið haust í Aberdeen, skólasvæðið fullt af fólki og langar raðir í alla þjónustu en nýnemunum fylgir líka góður lærdómsandi sem ég hef einsett mér að nýta. Nú þarf ég að þvo og pakka og skrifa og pæla sem aldrei fyrr. Ef þið lumið á afgangs einbeitningu eða lærdómsaga þá endilega faxið því til mín.

6 Ummæli:

Blogger Tóta sagði...

múahahahaha þetta er fyndnasta mynd í heim- þórhildur er eins og líkneski eða innbrotsþjófur :)

5:01 e.h.  
Blogger Kristín sagði...

Er innbrotsþjófur heppileg líking í stóra samhenginu?? En þessi mynd er snilld og ég hlæ enn að henni og öllum hinum ;)

7:27 e.h.  
Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

hahaha! þessi mynd er algjört æði! ég var gjörsamlega að fríka út mér fannst svo gaman :)

10:40 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hvað var eiginlega í gangi þarna ?

Halli.

ps. á engan lærdómsaga en smá einbeitningu sem ég sendi hér með.

11:26 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ertu enn á faraldsfæti? "Nú þarf ég að þvo og pakka?"
Mikið er gott að vita að þið skemmtuð ykkur "konungslega" í Cambridge.
Lærdómsaga hef ég aldrei átt, og afskaplega litla einbeitingu en ef hún skilar sér til þín þá er hún afhent með glöðu geði.
Bestu kveðjur,
sigga

7:09 e.h.  
Blogger Edda sagði...

Er þetta actionary leikur?

Gangi þér vel að nýta lærdómsandann - ég er því miður ekki aflögufær um námsaga og einbeitingu... er að nota mitt í botn. Á samt alveg botnlausa þolinmæði og sendi skammt hér með.

bestu kveðjur til Skotlands,
Edda

11:27 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim