Einu sinni bjó ég á Helgafelli á Eyrarbakka sem einu sinni hét Hagi og heitir hjá hinu opinbera Eyrargata 22. Þar var gott að búa og þar gerðist margt skemmtilegt. Margt fólk kom í heimsókn, flest oftar en einu sinni og þaðan var stutt að fara víða í heimsóknir og á flesta staði fór ég oft. Þetta var fyrir tæpum þremur vikum en gæti allt eins hafa verið fyrir tæpum áratug.
Skjótt skipast veður í lofti. Núna bý ég uppi á þriðju hæð á Watson stræti 14 í Rósarhaugs hverfinu í Aberdeen. Þaðan er langt að fara flest og fáir koma í heimsókn, en þeir sem koma koma oft. Þar er samt gott að vera, vítt til veggja og hátt til lofts. Það búa engar pöddur undir þvottavélinni á Watson stræti og þar hefi ég hvorki séð trjálús né mús.
Skjótt skipast veður í lofti. Núna bý ég uppi á þriðju hæð á Watson stræti 14 í Rósarhaugs hverfinu í Aberdeen. Þaðan er langt að fara flest og fáir koma í heimsókn, en þeir sem koma koma oft. Þar er samt gott að vera, vítt til veggja og hátt til lofts. Það búa engar pöddur undir þvottavélinni á Watson stræti og þar hefi ég hvorki séð trjálús né mús. Það er komið vor í Aberdeen, það er ennþá vetur á Íslandi?! Ég gekk jakkalaus í skólann í morgun, fram hjá óteljandi gulum páskaliljum og útsprungnum túnfíflum, rauðum túllípönum og bleikum kirsuberjatrjám. Áður hafði ég skellt eldhúsglugganum í skyndi á nefið á Mæju býflugu. Á Íslandi var ég með húfu og vettlinga (a.m.k. í vasanum) að dást af agnarlitlum fjólubláum krókusum sem gægðust upp úr freðinni moldinni. Ajæja, óekkí.
Hver vegur að heiman er vegurinn heim.

5 Ummæli:
voðalega ljóðrænt og fínt :) en já veturkonungur hefur ekki yfirgefð ríkið sitt Ísland og hreinlega er ég efins um að hann geri það nokkurn tímann... en það er ég sennilega alltaf um þetta leyti árs.
....en öll él birtir upp um síðir :)
góðar stundir syssa!
Flott hús sem þú býrð í.
Hér er ennþá snjór og haggél og ég sem var búin að leggja vetrarúlpunni minni þurfti að taka hana upp aftur.
Gaman að þú sért farin að blogga aftur :)
Kv. Hildur
Mikið er ég glöð að þú skyldir fá þessa fínu íbúð. Vonandi fer vel um ykkur þar og ábyggilega fjölgar gestunum með hækkandi sól :)
bestu kveðjur til ykkar,
sigga
Öfunda þig af vorinu... það snjóaði á mig í morgun í sundi - samt var sól. Mjög undarlegt veður.
knús á þig,
Edda
jei gústublogg! ég hlakka svo mikið til að koma í heimsókn í rósarhaugshverfið og njóta pödduleysisins og góðra samverustunda.
ég er ekki búin að fá neitt páskaegg svo ég get ekki slegið um mig með málsháttum að þessu sinni :)
luv!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim