Að því spyr veturinn, hvað sumarið aflar
Föstudagurinn langi er nefndur föstudagurinn góði upp á enska tungu. Ég kann engar skýringar á því en hér halda menn hann ekki heilagan þó einhvern tíma hafi það eflaust verið gert. Það kom sér vel fyrir okkur í morgun þar sem við gátum farið á pósthúsið og sótt lítið svart box sem tengir okkur við veröldina gegnum vefinn og því get ég í fyrsta sinn í tæp þrjú ár bloggað dálítið úr eldhúsinu mínu.
Páskahelgin er sem hver önnur helgi hér á Watson stræti, hvorki lengri né styttri en aðrar helgar. Í sárabót fáum við hinsvegar fjögurra daga helgi næst sem hefst með konunglegu brúðkaupi á föstudaginn og endar á maí frídegi á mánudag þó hann beri upp á annan dag mánaðarins en ekki hinn fyrsta.
Þar sem við nenntum ekki að burðast með súkkulaðiegg frá Íslandi þá er engra málshátta að vænta á sunnudaginn og því brá ég á það ráð að velja mér einn sjálf. "Að því spyr veturinn, hvað sumarið aflar" varð fyrir valinu. Skírdag bar jú upp á sumardaginn fyrsta og þó hvorugur þessara daga séu hafðir í hávegum hér þá hefur sumarið bankað upp á og Jesú og lærisveinarnir snætt sinn kvöldverð, skírðir með hreinar tær.
Í fyrsta sinn í tæpan áratug verð ég heima hjá mér í allt sumar. Ég er hvorki á leiðinni til Nýja né Gamla Íslands og múrskeiðin fær að ryðga ósnert í pokaskjattanum inni í skáp ( "Betra er að slitna af brúkun en eyðast af ryði" á ekki við hér!). Nú ríður hinsvegar á sem aldrei fyrr að afla vel. Ég þarf að skrifa heil ósköp að orðum fyrir haustið en "Hverjum degi nægir sín þjáning" og allt það.
Við leit að góðum málshætti urðu þessir á vegi mínum og hendi ég þeim hér fram fyrir þá lesendur sem ekki fá páskaegg af einhverjum orsökum og syrgja litla gula miðann úr iðrum þess.
Bjalla er bjórfullur maður...Blátt er betra en ekkert...Margur er varningur í sölumanns sekk...Menn hrasa ekki um fjöllin heldur hundaþúfurnar...Rass togar fastar en reipi...Þín eigin gömlu föt eru betri en ný föt annarra
Gleðilega páska!

3 Ummæli:
Gleðilegt sumar Ágústa mín og gleðilega páska.
Ég kannast bara ekki við neinn af þessum málsháttum sem þú skrifar þarna. Varstu kannski að þýða þá úr ensku?
Bestu kveðjur til ykkar hjúanna.
Sigga
Mér þykir þessi síðasti mjög sérstakur, þvingar hreinlega fram spurninguna hvenær verða málshættir málshættir og hætta að vera gamlar tuggur.
Ég stalst í eitt lítið gullegg áðan og úr því kom þessi: Jafnir fiskar spyrðast best. Held ég verði að ráðast á annað og athuga hvort það komi ekki eitthvað betra út úr því.
páskaástarkveðja!
frábært! sérstaklega þetta með rassinn :)
Stella biður að heilsa, hún er enn alltaf að hringja í sgúla sinn.
ást og kossar
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim