mánudagur, febrúar 20, 2006

Heima er best

Það er sannleikur í því, en hvar á ég heima? Ég hef átt heima á tveimur stöðum mjög lengi. þegar ég hafði búið í Reykjavík í fjögur ár, hitti ég túrista á gangi sem spurði mig "ertu héðan" ég hristi hausinn og þá spurði hann "ó en veistu nokkuð hvar x er" (x er hér ekki óræð stærð heldur einhver týpískur túrista staður í Reykjavík) ég beindi honum áleiðis. Nú á ég heima á þremur stöðum, ég fer heim úr skólanum á Danmerkurgötu, heim úr Bristol á Kárastíg og heim af Kárastíg á Túngötu - á ég þá heima á Túngötu, er það best. Þetta fer nú að verða eins og montpistillinn minn, en það liggur aðeins öðruvísi hugsun að baki - meira grasið er grænna hinum megin pæling en margbrotin sjálfsmynd. Það er hægara sagt en gert að búa til heima sem er best, ekki það að mér líði ekki vel í Bristol, alls ekki, en borgin hefur ekki þennan heima brag yfir sér. Það er erfitt að setja fingur á það sem gerir staði heimilislega. Við vinirnir hérna tölum stundum um, ég vildi að við ættum heima hérna, þá gætum við hangið heima hjá hvert öðru - þessi hugmynd kemur yfirleitt upp þegar allir eru í sjónvarpsstuði og ekkert er sjónvarpið, en varla er sjónvarpið kjarni heimilisins. Litla herbergið mitt er frekar tómlegt, og stundum hef ég hugsað: ég þarf fleiri hluti til að gera herbergið heimilislegra. Þegar ég var svo heima (á Kárastíg) um jólin hugsaði ég, já muna að taka hluti með til Bristol en úr því varð ekki því ég gat ekki fyrir neina muni ákveðið hvaða hlutir það skildu vera. Heima er búið til úr mörgu, vissulega eru það hlutir sem skapa heimilið (það bara verður að vera, að fullyrða annað myndi kippa fótum undan fornleifafræðinni og veru minni hér) en það þarf fólk til að nota hluti og hluti til að nota fólk, kannski bara eitt fólk, það eru jú til einsmanns heimili.... hmmm veit ekki meir, kannski er ég bara ekki vön að vera á einsmanns heimili. En mikið er ég heppin að eiga mörg heimili og marga hluti og þekkja margt fólk....

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim