fimmtudagur, desember 29, 2005

Heima um jólin

Kom heim á degi heilags Þorláks og skellti mér beint á Bæjarins bestu, eftir það í einn öl með góðum vinum og svo snemma í ból. Á aðfangadag fór ég svo heim á Eyrarbakka í átveislu og pakkaflóð. Jóladagur var svo með hefðbundnu sniði jólakaffi í Hjallatúni og kvöldmatur með föðurfjölskyldunni, lá svo í rúminu allan annan dag jóla og horfði á sex Woody Allen myndir ... og geri aðrir betur!!!
En jólin voru stutt í ár og ég komin í vinnuna á Bárugötunni að hnýta lausa enda og fínpússa það sem hlaupið var frá í haust.
Setti inn jólamyndir á myndasíðuna, sérstaklega fyrir hana Þórhildi mína sem var fjarri góðu gamni þetta árið.
Njótið vel!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim