fimmtudagur, febrúar 16, 2006

Í dag er rigning í Bristol, en það var ekki raunin í gær og í fyrradag þegar borgin skartaði sínu fegursta fyrir Þórhildi og Tóbías. Það var ótrúlega skemmtilegt að hafa þau sköthjú hjá mér og er ekki laust við að herbergið mitt sé tómlegt án þeirra. En allt gaman tekur enda um síðir og nú tekur hversdagurinn við. Við gengum um alla borg, upp brekkur og tröppur, sátum á bekkjum og ræddum vandamál heimsins og borðuðum góðan mat. Þórhildur hafi orð á því að einungis þrisvar áður hefðum við verið aðskildar í jafnlangan tíma á hennar ævi, en einungis tvisvar á minni, þar sem hún fæddist jú 6 mánuðum á undan mér.
Það er ótrúlegt til að hugsa að það séu rúm 9 ár síðan að við fluttum á Holtsgötuna... vá hvað við erum orðnar gamlar!!!
Takk takk fyrir heimsóknina, hlakka til að fá ykkur aftur!

p.s. Þeir sem eru að velta fyrir sér að koma í heimsókn geta fengið meðmæli um borgina frá hjónunum í Frankfurt. Ég hlakka til að taka á móti fleiri gestum ; )

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim