föstudagur, janúar 20, 2006

Sæl og blessuðu öll sömul

það er svo sem ekki mikið að frétta héðan frá Bristol nema kannski helst að ég er búin með harðfiskinn :( Ég er búin að vera að snúast og safna heimildum og eru þær nú flestar komnar í hús og þá er bara að byrja að skirfa, gengur sem sagt bara ágætlega. Er búin að vera svona í stressaðari kantium, dreymdi um daginn að kennarinn minn henti ritgerðinni minni í ruslið og sagði mér að byrja upp á nýtt... vonum bara að það gerist nú ekki!
Í gær gerðist svo sá gleðiatburður að Tóta og Matti pöntuðu sér flugfar hingað til mín, í apríl, mér finnst svolítið langt að bíða en Þórhildur og Tóbías koma nú í millitíðinni.

Vinir mínir hér eru að tínast heim úr jólafríum, allstaðar að og er skemmtilegt að hlusta á mismundandi sögur, sumir mokuðu snjó og urðu veðurteptir, aðrir syntu í sjónum og sólbrunnu, sumir kvarta undan ensku vetrarveðri og dúða sig upp þegar haldið er út, aðrir skjótast út á peysunni einni klæða og þakka blíðum veðurguðum. En ég held að ég sé líklega sú eina sem glöð dreg upp seðla í matvörubúðinni - allir aðrir blóta ensku verðlagi og hrista hausinn. Talandi um það þá verð ég bara að nefna það (veit að þetta er óþolandi umræðuefni og ég ætla ekki að verað svona kona sem kemur heim úr útlöndum og fussar og sveiar í bónus) en ég keypti mér nefninlega oststykki um daginn, svona týpískan gulan plastost ekki ósvipaðan skólaosti og eitt stykki kostaði bara 89 p, um 100 kr!!! mikil var gleði mín þá og hef ég borðað ógrynni af samlokum með osti síðan.

Þegar ég var í Glasgow sagði einhver einhverntíma að ég bloggaði bara um mat.... var bara hugsað til þess þegar ég las yfir færsluna - ég hef nú alltaf verið matargat, lofa þó fjölbreyttari færslum í framtíðinni.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim