föstudagur, janúar 27, 2006

Hún Þórunn Jóna skorðaði á mig....

Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey: áður en ég dey þá langar mig að grafa upp Vesturbúðarhól, skrifa bók, fara í lautarferð með rauðvín og osta í körfu og sitja á köflóttu teppi, ferðast til allra heimsálfa, gifta mig og eignast börn og læra að koma fram við aðra eins og ég vil að komið sé fram við mig.
Sjö hlutir sem ég get gert: ég get lesið góða bók í einum teyg, spilað minesweeper, skrifað tvær 5000 orða ritgerðir á þremur vikum, drukkið 5 kaffibolla á dag, leyst (auðveldar) sudoku gátur, sofnað um leið og ég legst á koddann og gleymt hvar ég lagði hlutina frá mér.
Sjö hlutir sem ég get ekki gert: neitað mér um það sem mér finnst gott, sparað peninga, leitað í orðabók án þess að syngja stafrófið, borðað ólívur, drukkið tónik, unnið í bresku trivial, né spilað pool.
Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið: heiðarleiki, rökvísi, húmor, dugnaður, sjálfsvirðing, sköpunargáfa og réttvísi.
Sjö frægir sem heilla mig: Jónas Hallgrímsson, Milan Kundera, Woody Allen, Vonnegut, Frank Sinatra, Fjalla Eyvindur, og Njáll á Bergþórshvoli.
Sjö orð/setningar sem ég nota oft: resplendant, sedulous, surreptitious (þetta eru nýju orð mánaðarins sem ég reyni að koma að eins oft og mögulega), thingamajic, whatyoumightcallit (þessi nota ég þegar ég veit ekki hvað hlutirnir heita), ha og jæja eru svo þau tvö orð sem ég nota bæði þegar ég tala íslensku og ensku.
Sjö lög sem kveikja í mér: simply the best, the blower's daughter, do you remember the first time, I want to dance with somebody, nothing else matters, me and bobby mcgee, fly me to the moon.

og hana nú! ég skora á Herdísi, Þorbjörgu og Jón og Rut og Stebba.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim