fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Ég talaði aðeins um mont í síðasta pistli...
Ég er ekki lengur montin af skrafl kunnáttu minni því ég hef tapað tvisvar í röð og í sæluvímu eftir fyrsta sigur veðjaði ég rauðvínsflösku : ( Andrew er hinsvegar montinn af því að hafa sigrað mig og unnið flöskuna. Ég fann mér hins vegar nýja ástæðu til að vera montin því mér gekk vel með ritgerðirnar og fyrirlesturinn.
Haldið þið að Íslendingar séu sérstaklega montin þjóð?
Við könnumst öll við fallegu konurnar og sterku mennina, ótrúlega frambærilegt íþróttafólk, útsjónarsama viðskiptamenn og þar fram eftir götunum (allt auðvitað niðurstöður flókinna reikninga þar sem höfðatölustuðullinn kemur við sögu)....
Haldið þið kannski að það að alast upp við þessa reikninga geri mann montnari en gengur og gerist - ég vann í skrafli og ég er Íslendingur sem tala íslensku þess vegna má ég vera montnari en aðrir, ég fékk góðar einkunnir og ég er Íslendingur sem tala íslensku þess vegna má ég vera montnari en aðrir?
Er þetta mont mitt bara enn ein birtingarmyndin af sterkri þjóðerniskennd Íslendinga?
-Ísland best í heimi-
Við könnumst öll við svona pælingar. Að búa í útlöndum fær mann þó til að líta pínulítið öðruvísi á hlutina. Það er margt sem betur fer í öðrum löndum - margt sem er betra hér en heima. Það breytir því þó ekki að ég er oftar minnt á þjóðerni mitt hér en heima, af eðlilegum ástæðum og stundum fer ég alveg í flækju yfir spurningunum sem á mér dynja:
"Segðu mér allt um Þingvelli - afhverju eru þeir á heimsminjaskrá?"
"Er það satt að Íslendingar hendi aldrei rusli á jörðina?"
"Er tónlist Bjarkar byggð á Íslenskum menningararfi?"
Oft rekur mig í vörðurnar, yppi öxlum og óska þess að ég væri "bara" dönsk (þó ekki á þessum allra síðustu dögum).
Auðvitað er ég meðvitaðari um hvaðan ég kem þegar ég er að heiman. Það er skrýtið hvað margir vinir mínir segja við mig að þeim finnist frábært að eiga íslenskan vin... "ég verð að senda tölvupóst heim og segja vinum mínum að ég hafi kynnst Íslendingi" - það er þá sem það renna á mig tvær grímur - er ég jafnfrábær og ég er ;) af því að ég er Íslendingur?
En þetta eru niðurstöðulausar pælingar, við erum öll margt í senn, stelpur/strákar, mæður/feður, Eyrbekkingar/Hafnfirðingar, Íslendingar.... það er erfitt að vita hvað stjórnar hverju.... ælti ég sé ekki bara svona montin af því að ég er kvenkyns Eyrbekkingur, fornleifafræðingur, Íslendingur og vinur ykkar.....
Af hverju eruð þið montin???

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim