mánudagur, janúar 16, 2006

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir öll gömul!

ég er komin aftur til Bristol í góða veðrið (það er nú ekki upp á marga fiska en mér skilst að þið séuð að kafna í snjó og fjúkandi út á haf). Er í þessum töluðum að snæða síðustu flatkökurnar sem fylgdu mér af landi brott en harðfiskurinn situr uppi á hillu og bíður þorra (hvenær byrjar hann annars?). Ég er reyndar búin að stelast í hann og angar því herbergið mitt af prýðis fiskifýlu gestum til mikillar ánægju.
Allt gott að frétta, er á kafi í ritgerðarsmíðum og gengur bara ágætlega, held ég. Ný önn byrjar í lok mánaðarins og ég hlakka mikið til - þá verður öllum þeim verkefnum sem nú hanga yfir mér lokið og komin tími til að fresta nýjum fram á síðustu stundu - en það er jú skemmtilegasti tími námsmannsins, þ.e. þegar enn má fresta!
Hafið þið það annars sem allra best og njótið þess að geta skroppið út í búð og keypt flatkökur!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim