Takk takk fyrir afmæliskveðjurnar, kortin, pakkana og allt saman. Ég er búin að horfa á heila seríu af Beðmálum í borginni (takk tóta og hildur), lesa How to be good og hlægja dátt yfir þýskum-íslenskum afmælissöng (takk þórhildur og tóbías), éta á mig gat af íslensku nammi og lesa sunnudagsmogga í ræmur (takk howell) !!! Annars átti ég prýðis góðan afmælisdag, fór í fótsnyrtingu, í heitan pott og í ljós, út að borða og svo í kampavín í góðra vina hópi.
Síðustu viku var ég svo í London, var laaaazzzin allan tíman en skemmti mér þó vel. Eyddi mestum tímanum í gripasafni the museum of london og skoðaði diska, bolla og undirskálar frá 19. öld sem var alveg frábært! Fór svo og skoðaði British museum og tate modern á milli þess sem ég ferðist neðanjarðar með horbréf uppi í erminni - já ég er orðin háð þessum titsjúpökkum og snýti mér hressilega á fimm mínútna fresti.
Á leiðinni heim frá London stoppaði ég svo í Bath og verslaði aðeins til jólanna og kom svo til Bristol síðdegis og svei mér þá ef það var ekki bara yndislegt að leggjast í mitt litla rúm í litla herberginu mínu.
Á morgun fer ég svo til Sheffield svo til Bristol og svo til London og svo Reykjavíkur ... hlakka ótrúlega til að hitta ykkur öll - gangi ykkur vel í jólastússinu, ekki fara yfir um!

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim