Ég hitti einn Þjóðverja um daginn, sem var kominn til Bristol til að kíkja á fornleifafræðideildina þar sem hann er að ljúka doktorsnámi. Vænsti piltur en talaði alveeeeg eins og Tobías með sömu takta og allt, örugglega að mestu leyti hreimurinn en þetta var magnað.... Hann sagði mér að ég væri fyrsti venjulegi Íslendingurinn sem hann hafði hitt - en áður hafði hann spjallað við Erp Eyvindarson og Björk, Erp hitti hann í Nicaraqua og Björk á flugvelli í Þýskalandi - fannst það doldið fyndið!
Og hann sagði mér að Helene See sem Þórhildur baðar sig stundum í sé gervi vatn þar sem húð höfðuð hafast við...er það satt?
En nóg af honum.
Allt orðið mjög jólalegt í Bristol fyrir utan veðrið en það rignir og rignir þessa dagana. Ég er komin í mikið jólaskap og hlusta á jólalög í útvarpinu við hvert tækifæri annars er ég er að fara til London á mánudaginn næsta og verð fram á föstudag og svo fer ég til Sheffield í þrjá daga og svo kem ég til Íslands á Þorláksmessu - við sjáumst þá!

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim