miðvikudagur, janúar 25, 2006

Það gerðist eitthvað undarlegt með bloggið mitt, linkarnir mínir hrundu allir niður fyrir allar hellur. Ég bara skil þetta ekki, vinsamlega segið mér hvernig má laga þetta. Ekki að það skipti öllu máli, en ef það er eitthvað sem fer í taugarnar á mér þá eru það tölvur með 'sjálfstæðan' vilja... þegar hlutirnir gerast og maður skilur hvorki upp né niður í neinu. Ég ákvað að taka mér pásu frá ritgerðarskrifum þar sem word var að gera mig geðveika. Ég var að reyna að setja inn myndir og myndatexta og töflur og þar fram eftir götunum og ástandið var orðið svo slæmt að Brynjar bréfaklemma vissi hvorki í þennan heim né annan og sambýlismenn mínir búnir að fara til dyra tvisvar hver, þar sem ég bankaði í skrifborðið mitt undurblítt annað slagið. Allavega í pásunni ætlaði ég að taka til á bloggsíðunni minni og gera hana fína - til að laða að fleiri lesendur - og þá gerist þetta...mig auma!
Annars er allt gott að frétta frá Bristol, ég vona bara að ég verði enn með nokkur hár á höfði mínu þegar þessari törn er lokið á mánudaginn!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim