föstudagur, febrúar 03, 2006

Er ekki kominn tími til að blogga (lesist undir laginu tengja tengja ....)

Í Bristol er fimbulkuldi og sannast það enn og aftur að celsíus kvarðinn er afstæður, nema breskir veðurathugunar menn séu gengnir af göflunum, þeir fullyrða að hitastigið sé -1° en ég kaupi það sko ekki. Sit hér inni í herbergi í flókaskóm með hálsklút, kalda fingur og rautt nef - sem skýrist kannski af opnum glugga og 6 tíma setu við lestur, en ef glugginn væri ekki opinn myndi ég ekki hafa nægt súrefni til lesturs þurra bóka eins og Becoming Roman... en nóg um það.

Ritgerðar og fyrirlesturstörn minni er lokið og bíð ég nú einkunna með spennublandinum kvíða. Á mánudaginn fagnaði ég tarnarlokum með spurningakeppni á nálægum pub og stóð lið mitt sig svo vel að við hlutum rauðvínsflösku og vorum kölluð "geeks" gott mál það. Einnig hef ég spilað skrafl tvisvar við Andrew og vann fyrstu viðureignina. Held að það sé í fyrsta sinn sem ég sigra í skrafli og að það skildi hafa verið í enskri útgáfu þessa snilldarleiks gladdi mig óneitanlega og hef ég verið með eindæmum grobbin síðan (ekki ósvipað og þegar þórhildur vann kappakstursleikinn hér í denn).

Svo fór ég líka á smá ráðstefnu fornleifafræðinga og landfræðinga, alltaf verið að reyna að stuðla að samtölum milli deilda. Þar var hún Gunnþóra með fyrirlestur um túrisma og Ísland og var það svo sannarlega skemmtileg tilviljun. Ég tók eftir henni leið og ég gekk inn í salinn því hún var í spaks manns spjörum og kynnti mig að sjálfsögðu og það var óneitanlega skemmtilegt að geta tekið þátt í leyniumræðum á íslensku.

Í kvöld hef ég svo boðið nokkrum vinum mínum í heimsókn í rauðvín og osta til að stytta mér stundir í óþreyjufullri bið minni eftir Þórhildi og Tóbíasi. Búin að redda svefnpoka en vantar enn dýnu og fermetra, ef einhver á svoleiðis á tölvutæku formi þá endilega senda mér við tækifæri....

Bless í bili, gússa

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim