mánudagur, september 06, 2010














Það var yndislegt að vera í Frakklandi þar sem brauðbíllinn flautaði á bæjarhlaðinu hvern dag um hádegisbil og fiskibíllinn á föstudögum, með ferskan krækling og ostrur. Ég lifði svokölluðu lúxus lífi í heilar þrjár vikur. Flesta daga las ég undir tré, baðaði mig í sundlaug og sól og drakk svo rauðvín undir stjörnunum. Ég fór líka í langar hjólaferðir um sólblómaakra, tvisvar sinnum sigldi ég á kanó og svo tók ég þátt í einni matreiðslukeppni (ég tapaði en bara með einu stigi sem er merkilegt því ég þurfti að versla ein í laumi í franskri búð sem er hægara sagt en gert). Afmælisveislan fór vel fram, jazz hljómsveit spilaði undir dansi svo það var hvorki þörf fyrir pott né sleif og þaðan af síður íslenskar drykkjuvísur.

6 Ummæli:

Blogger Tóta sagði...

Rosalega er þetta flott þarna hjá tengdó :) Hljómar afskaplega vel og suffisticated, en ágú matreiðslukeppni, hvað eldaðiru?

11:35 f.h.  
Blogger Rut sagði...

vá æðislegt hjá ykkur!

1:55 e.h.  
Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

næs! pant koma með næst!

9:47 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

skál fyrir lúxuslífi. Og góða ferð til Kanada.
sigga mos.

11:25 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Mikið hefur verið gaman hjá ykkur :)
Góða ferð til Kanada og gangi þér vel

Kv. Hildur

1:20 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Trés bien ! Ljómandi huggulegt þarna hjá tengdaföður þínum. Sé alveg fyrir mér langt franskbrauð og rauðvín. Bon voyage a Canada. Bið að heilsa Chris

Halli

3:07 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim