
Við frændsystkinin notum þennan frasa oft yfir ákveðið ástand sem stundum kemur yfir mann og þá með skírskotun í mæður okkar. Þó minnist ég þess ekki að slökkt ljós og hávær græju-tónlist séu hluti af skemmtanahaldi eldri kynslóðarinnar þá er víst að símhringing á næsta bæ leiðir of til þess að eitthvað sé gert en jafnan er græjutónlistinni skipt út fyrir söng.
Vinir mínir hér hafa næstum jafngaman af því að búa til hávaða og ég á ætt til en þó frekar með því að spila á hljóðfæri en syngja vísur. Með viskí glas í annarri er þeim tamt að taka upp gítara og munnhörpur og semja tónlist. Tónlistarnámi mínu lauk þegar Sigfús sagði mér að ég mætti ekki læra á blokkflautu í annan vetur og þyrfti að læra að spila á píanó og því kann ég ekki að spila á neitt. Mér er þó iðulega gefinn pottur og sleif og sagt að tromma - sem er ágætt. Þannig rættist einmitt úr verslunarmannahelgar föstudeginum.
Ég fer til Frakklands á sunnudaginn og helgina eftir heldur tengdapabbi upp á 60. afmælið sitt. Ég hef aldrei gerst svo fræg að taka þátt í veisluhöldum þessarar ættar en ætla þó að vera tilbúin með pottinn og sleifina og kannski bara kannski kenni ég útvöldum að syngja "Hvað er svo glatt.." því þar sem ég missti af Jónsmessu og íslenskri verslunarmannahelgi og mun missa af Aldamótahátíð þá langar mig svo rosalega mikið að "slökkva ljósin, hækka í græjunum, hringja í einhvern og gera eitthvað"!

4 Ummæli:
Mæli með því að þú stígir á stokk í afmælinu og syngir fyrir slektið íslenskar drykkjuvísur. Góða ferð til Frakklands.
Halli
Góða ferð til Fransí Ágú mín. Tek undir með Halla, þú getur alla vega sungið íslenzkar drykkjuvísur. Jafnvel leikið undir á pott.
Bestu kveðjur,
Sigga moster
Hvet þig til þess að stíga á stokk og syngja þessi lög sem allir kunna :)
Þú þarft engan undirleik, minnist þess ekki að það hafi verið slíkt í okkar familíu.
Kv. Hildur
Miðað við aktivití-ið þitt á facebook, finnst mér að þú eigir að blogga
Kv. Hildur
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim