miðvikudagur, júlí 28, 2010

Takk fyrir að panta fyrir mig á Sólvöllum Halli en annars var ég að spá í að flytja bara frekar á Helgafell. Við Chris ætlum nefninlega að hafa vetursetu á Eyrarbakka milli jóla og páska og það stefnir allt í að við verðum bara alveg niðri í bæ, á Helgafelli.

Ég ætla samt að reyna að breytast ekki í gamla konu alveg strax. Hugsa að ég skelli mér í norpara og hlaupi á bak við sjoppu annað slagið til að halda mér ungri ...

Með áframhaldandi framtíðarplana bloggi þá mun næsta færsla vera um sextugs afmælið mitt. Það er bara svo lítið um að vera eins og er. Ég er alltaf niðri í kjallara að bursta og flokka ryðgaða nagla og ég get sagt ykkur að það er fátt, ef eitthvað, leiðinlegra en það. Frekar vildi ég vera í aðgerð í frystihúsinu á Stokkseyri!!

Ég get ekki beðið eftir að komast á þorrablót á Eyrarbakka ... hver er í skemmtinefnd?

7 Ummæli:

Blogger Tóta sagði...

Hlakka svo til að fá ykkur :)
Treysti því að nú verði alltaf boðið upp á pönnsur og möndluköku og að börnin fái nú ný-prjónað á hendur og fætur :)

12:54 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Vá, hvað þetta verður frábært :) Nú kem ég alltaf á Helgafell í pönnsur þegar ég kem á Eyrarbakka.
Þú veist að það er pressa. Það eru alltaf til upprúllaðar pönsur með sykri á Helgafelli. Svo þarftu líka
alltaf að vera að raula fram í heiðanna ró
kv Hildur

3:32 e.h.  
Anonymous Sólveig sagði...

Sæl frænka. Það er ótrúlega skemmtilegt að lesa bloggið þitt! Edda sagði mér frá því. Þú hefur kannski heyrt um breskan sjónvarpsþátt sem heitir Bonekickers og verður mér hugsað til þín þegar ég horfi á hann. Kannski ekki alveg eins mikill hasar hjá þér en virkar samt mjög spennadi það sem þú ert að gera. Kv. Sólveig Magnúsdóttir

3:41 e.h.  
Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

æ hvað ég er glöð að eiga flugmiða heim yfir jólin, það var svo ósköp gott að sækja ykkur chris heim á helgafell um liðin jól :)
kannski ég verði bara líka fram að páskum, ætli sé laust í deild ?

p.s. ertu ekki með neina ryðgaða öngla?

10:34 e.h.  
Blogger Edda sagði...

Það verður gott að fá þig á Helgafell Ágústa mín - ég held að þér sé alveg óhætt að bjóða upp á breskan árbít í stað hinna upprúlluðu... ég bakaði allavega bara amrískar pönnsur og það var alveg að gera sig, sama lyktin og allt.

1:21 e.h.  
Blogger Ágústa sagði...

ég kann bara að prjóna trefla og það skulu öll börn fá sem heimsækja Helgafell. Möndlukaka verður á boðstólum ef hún fæst í Vesturbúð og boðið verður upp á pönnukökur á laugardögum með hlynsírópi og beikoni! Díll??

Gaman að heyra í þér Solla! Þeir sýna ábyggilega aldrei bone kickers að þrífa nagla? en stundum fæst ég nú við meira spennandi verkefni!

12:16 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Drekkum svo kaffið af undirskálum. Það tilheyrir á Helgafelli.

Halli

12:35 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim