föstudagur, júlí 09, 2010

Ég er komin heim í hosiló. Aberdeen er ágæt, engar flugur né sólbruni bara þægilegur rigningarúði, hundaskítur og gargandi mávager sem boðrar mig ekki neitt (eins og maður segir á góðri vestur-íslensku). Ég get notið þessa alls í rúman mánuð en þá set ég undir mig betri fótinn og held til Frakklands í mikla afmælisveislu á Heppell óðalinu. Ég verð í Frakklandi í heilar þrjár vikur og svo fer ég aftur til Kanada og kem svo við í Cambridge á leiðinni heim til að dansa með 9 yndislegum stelpuskjátum yfir helgi. Hversdagurinn tekur svo aftur við í lok september þegar þriðja og síðasta árið í doktorsnáminu hefst með aðgerðaráætlunni: "skila fyrir 30 ára afmælisdaginn" - því einhverntíma verður þessari skólagöngu að ljúka svo ég geti byrjað að troða bókvitinu í askana. Guttormur, hvers rusl ég gróf upp hafði ekki mikla trú á skólafræðslu eins og þessi vísa hans bendir til:

Skólafræðsla mörgum manni veitt
mikil eða lítil, sama og eitt:
Oní daufan Geysi sápa sett,
svo hann geti tómri froðu skvett.

Hann fékk ekki að fara í skóla heldur farmaði og farmaði allt sitt líf. Það er líklega ekki eins mikið basl að vera í skóla eins og að vera farmari á Nýja Íslandi, en þessi vísa finnst mér góð

Þeir kúguðu þurf´yfir sjálfa sig helst að hækka sig.
Því hitt er ei nóg að lát´ekki baslið smækka sig.
Að rísa upp á mót´ hinu ranga en ekki lækka sig,
er ráðið til þess að láta sjálft baslið hækka sig.

En nú hætti ég þessum ljóðalestri áður en þið pantið fyrir mig herbergi á Sólvöllum!

3 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Það er þvælingur á þér Ágústa. Hafðu það gott í Frakklandinu, njóttu rauðvína,osta og Chris ;-)

Ps. Herbergið er klárt á Sólvöllum
Halli

10:19 f.h.  
Anonymous Herdís sagði...

Hlakka til að dansa með þér í Cambridge.

Herdís

11:59 e.h.  
Blogger Tóta sagði...

Hver skrifaði þetta? Ágú eða afi Jón?

2:57 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim