Nú eru dagarnir farnir að lengjast hér í Deeninni, bjart þar til klukkan er langt gengin fjögur. Það hefur ekki rignt neitt að ráði á árinu og ekki laust við að ég sé komin í vorskap. Hátt í 10 stiga hiti og sól hafa ótvíræð áhrif en það eykur á vorfílinginn að nú fer bráðum að koma að barnaburði (sbr. sauðburði) hjá Eyrbekkingum nær og fjær. Von er á barni í hverjum mánuði langt fram á sumar og ég er búin að brýna prjónana og hekklunálina.
Ég ætla að panta mér flugmiða heim strax og nýtt visatímabil hefur göngu sína og mun vonandi koma til landsins um mánaðamótin mars/febrúar til að líta nýjustu edwaldínuna augum og rutarstelpu stefánsdóttur. Þá ætla ég líka að bruna í Skagfjörðinn og óska hér með eftir ferðafélögum sem langar til að skoða Hofsós í vetrarbúningi. Ég lofa ís í Borgarnesi og pylsu í Staðarskála (með sinnepi undir).
En nú er ég komin langt fram úr mér. Fyrst mun ég halda upp á þrítugsafmæli spúsans með gleði og glaum í Jórvíkurskíri í byrjun febrúar og gera ýmislegt fleira hversdagslegt og óplanað það sem eftir lifir af janúar. Ef eitthvað verður í frásögur færandi, verðið þið fyrst að fá að vita það!

5 Ummæli:
ég hlakka sko til að sjá þig á íslandinu! ...og nýjustu edwaldínuna!
ég hlakka til að sjá ykkur allar :)
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
jeminn, þrítugur spúsi, það hlýtur að verða eitthvað húllumhæ!
mikið vildi ég gjarnan koma með þér á Hofsós, mjög vel gert af þér að bjóða bæði upp á pulsu og ís, finnst ég allt of oft hafa staðið í þjóðvegasjoppu og þurft að gera upp á milli þótt þetta séu klárlega ekki substitutes!!! ég ætla alltaf að leyfa mínum börnum að fá bæði ;)
Hæhæ, gaman að heyra frá þér.
Ég skal sko koma með þér, held barasta að ég hafi aldrei komið í skagafjörðin, en er planið að taka rútuna þá það sem hvorki ég né þú erum svo vel búnar að eiga mótorknúið farartæki. Hlakka til að sjá þig og góða skemmtun í afmæli:)
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim