föstudagur, nóvember 21, 2008


Það er alltaf blessuð blíðan hér í Aberdeen. Hífandi rok og slydda. Það er eins gott að það er föstudagur og enginn (lesist ég) þurfi að rífa sig á lappir í fyrramálið og halda út í þetta veður.

Ég hlustaði á útvarpsþátt um Ísland í gær. Óskaplega eigum við bágt. Allir í afneitun, segja bara "þetta reddast" og láta sér nægja að mótmæla á laugardagseftirmiðdögum. Ajæja óekkí. Ef þið viljið hlusta sjálf þá er þátturinn hér:
http://news.bbc.co.uk/1/hi/programmes/crossing_continents/7734190.stm

Ég hringdi heim í gær til að fullvissa mig um að fjölskyldan hafi átt í soðið þar sem ég stóð sjálf á blístri eftir velheppnaða plokkfiskgerð. Allir voru saddir og sælir og það var helst í fréttum að Matti þurfti að fara í 3 búðir til að finna m&m :)

4 Ummæli:

Blogger Hildur sagði...

Ég hlustaði á þennan þátt afar fróðlegur og skemmtilegur. Hvar var þetta fólk að synda?
Hvers vegna þurfti matti svona mikið að kaupa m&m?
Gaman að lesa frá þér. Ég verð hjá Þórhildi á morgun og á sunnudaginn ef þig langar að hringja og spjalla smá þá væri gaman að heyra í þér. Við verðum líklega meira heima á sunnudaginn

11:53 e.h.  
Blogger augnpot sagði...

Já það virðist vera manns eina haldreipi að mörgu leyti að notast við "þetta reddast" möntruna. Maður lifir bara lífinu frá degi til dags. Annars er ég að hlusta á jólalög og skreyta fyrir jólin... voðalega notalegt.

Ég er nýbúin að uppgötva Skype-undrið og talaði við Þórhildi í gær. Alveg yndislegt að heyra röddina hennar og ná smá bondi... er afskaplega glöð að þau komi heim um jólin... vildi að svo væri um ykkur - búwú.

Luv

5:32 e.h.  
Blogger Tóta sagði...

hæhæ

ég og Unnur og Elli og Ari fórum í sunnudagsbíltúr til Kristínar í gær - elli splæsti í ís og allt - og ég sá teppið það er ekkert smá flott :) hlakka til að fá handavinnuna þín í pósti.
luv tóta

11:34 f.h.  
Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

mmm hvad ég vaeri til í Holtsgötublönduna gódu: nóakropp, skittles og appolo-lakkrís
eda theyting med fullt af lakkrís og ferskum jardarberjum.
vá thad er ekki eins og ég hafi ekki verid ad gúffa í mig apfelstrudel med dísaetum gervirjóma!
thad er ógssileg vot-í-faeturna-slydda í Brussel í dag og ég svona illaskóud!
yndislegt ad heyra í thér um helgina thorbjörg og ágústa og hildur náttla ;) og vá hvad ég hefdi verid til í ad skreppa med í bíltúr í Lynghaga!

1:38 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim