

Við skelltum okkur í fjallgöngu í gær, upp á hæsta tindinn í Aberdeen-skíri, Bennachie sem er rúmir 500 m á hæð. Á toppnum er gríðarstórt járnaldar virki og stórkostlegt útsýni yfir skírið. Það var mjög mikil hálka á göngustígnum og litlu munaði að Chris rófubeinsbrotnaði á leiðinni niður en ég var hvergi bangin og endurheimti þjóðarstoltið sem ég skautaði hnarreist niður hlíðarnar. Við vorum svo komin undir sæng upp úr níu og ekki laust við að ég sé örlítið þreytt í jafnvægisvöðvunum.
Myndavélin gleymdist heima svo þessar myndir eru af netinu af hlýrri degi.
yfir og út,

4 Ummæli:
enn hvað þetta hefur verið skemmtilegt og hressandi. er annars ekki fjöllóttara en þetta þarna fyrir norðan? ég var búin að búa það til í hausnum á mér að það væri svo mikil fjallasýn frá Aberdeen, kannski ekki til hárra fjalla en margra...
gott að þið komust heil niður!
verst annars að þið fjallageiturnar verðið ekki á Íslandi um jólin, tobi langar nefnilega svo mikið í Esjugöngu og mig svo lítið :)
kossar og knús!
Vá hvað þið eruð dugleg. Fjallaganga í ískulda er massa dugnaður:) Hvernig var annars á dansiballi?
Til hamingju með afmælið í dag 11 des. fjallageit.
Kveðja frá Selfossi
Halli og co.
Til hamingju með afmælið í dag elsku Ágústa :) Vonandi áttirðu góðan dag í dag.
Knús frá Unni, Ella og strákunum
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim