fimmtudagur, nóvember 06, 2008

2008 er líklega viðburðaríkasta ár lífs míns...

Snemma árs tóku Þorbjörg og Jón vinir mínir upp á því að láta gefa sig saman, þau fyrstu í nánasta vinahópnum... svo kom ísbjörn og svo annar ísbjörn og svo datt ég kylliflöt í blauta mýri í Flóanum í stórum jarðskjálfta...svo tilkynnti Kristín Þórðar mér að hún ætti von á barni (dásamlegur drengur er kominn í heiminn) og svo Tóta systir og svo Rut og svo Þórhildur og svo Ólöf... svo fór Ísland á "hausinn" og svo kusu Bandaríkjamenn sér svartan forseta.

Fyrir stúlku eins og mig sem hefur hingað til trúað því að hún myndi lifa í endalausu góðæri og verða seint fullorðin (eða bara ekki), að ísbirnir ættu heima á Grænlandi og að Bandaríkjamenn væru afturhaldsseggir eru þetta alveg heilmiklar fréttir...

4 Ummæli:

Blogger Tóta sagði...

...og árið er enn ekki búið,. Takk fyrir kveðjuna við erum komin heim en að sjálfsögðu tók ég sjöpakk af snickers með í ferðina :)

6:00 e.h.  
Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

já vá, þetta er alveg magnað. ætli þetta sé eitthvert einsdæmi eða skyldu komandi ár verða hvert öðru viðburðaríkara? getur varla verið. nema dr gunni verði forsætisráðherra á næsta ári...

9:08 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Já, þetta hefur svo sannarlega verið viðburðarríkt ár. Þú gleymir samt að nefna það að þú fluttir til Skotlands. Er það kannski ekki lengur viðburður hjá þér þegar þú flytur á milli landa?
Kv. Hildur

9:27 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Og svo var Bjarni Harðar að segja af sér sem þingmaður. Hvað gerist næst ?

Halli

11:37 f.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim