fimmtudagur, desember 18, 2008

Ég er með svolítinn heimþráð (eins og Hildur syss fékk í sumarbúðunum hérna í denn áður en heimþrá varð þráðlaus... eða þannig).

Finnst bara algjörlega vanta allan metnað fyrir jólunum hérna fyrir sunnan. Enginn talar um að "vera búinn að gera allt" eða "eiga hreinlega allt eftir" með tilheyrandi glotti eða stressi og enginn talar um sortir eða sörur. Enginn skreytir neitt að ráði og enginn talar um að fara í jólaköttinn eða finna jólafötin og verst af öllu: Enginn veit að jólin byrja á slaginu sex á aðfangadag! Ég sver fyrir það ég gæti með góðu móti staðið óböðuð í eldhúsinu í síðum nærbuxum að setja krem á mömmukökurnar klukkan sex og enginn myndi taka andköf!!!

Þannig að ég veit ekki alveg hvað ég á að gera við mig. Ég er búin að baka eina sort og þrífa skápana og hugsa til jólakjólsins sem hangir inni í skáp en það gæti næstum bara verið að koma verlsunarmannahelgi. Þegar ég settist niður í gær að skrifa jólainnkaupalista var það eina sem Chris sá til að færi á listan var wiský og knöll! jú og döðlur (þær eru nú pínu jóló).

En þetta er ábygglega alveg rosalega þroskandi. Jólin eru bara jól þau eru á hverju ári. Ég baða mig bara sérstaklega vel og strauja kjólinn og treð í mig smákökum á meðan ég góni upp í hreinu skápana mína á meðan Chris og jólagestirnir slíta knöll og súpa wiský ... Eða kannski reyni ég bara fjarskalega mikið að hætta að tala/hugsa um að maður verði að gera svona eða hinseigin á jólunum og spili hátíðirnar eftir eyranu. Kannski ég skíti bara út skápana aftur og borði allar smákökurnar um helgina! hmmmm

4 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég held barasta að allir verði að búa til sínar eigins jólahefðir. Mig dreymdi lengi um að fá að vera á náttfötunum á aðfangadagskvöld en það þótti ekki við hæfi. Ég er sko viss um að jólin þín verða ofsa góð og skemmtileg sama hvaða hefðir þú hefur á þeim.:) Væri sko alveg til í að hjálpa þér í smákökuáti

4:09 e.h.  
Blogger Tóta sagði...

já þetta verður voða gaman hjá þér, þú getur sungið fyrir þau íslensk jólalög þegar viskýið er farið að stíga í brjóst. hérna er búið að snjóa og snjóa og orðið agalega jóló en svo á víst að rigna á mánudag og þriðjudag, hvursu týpískt er það?!?

11:07 f.h.  
Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

æ sæta mín, ég er viss um að það verður fjarskalega gaman hjá þér á þessum öðruvísi jólum. það besta við að jólin heima séu alltaf eins er að maður missir eiginlega ekki af neinu þótt maður missi af einum... þannig getur maður alla vega huggað sig. ég myndi samt alveg rosalega mikið vilja fá þig heim um þessi jól, hefði aldrei trúað því að ég næði að klára heila meðgöngu án þess að hitta þig!
ást og kossar

12:29 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég skil nú alveg þetta með viskíið hjá Chris, það má ekki gleymast.

Halli

Ps. er búinn að næstum öllu :-)

2:56 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim