Sá fjórði, Þvörusleikir,var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,þegar eldabuskan fór.
Þá þaut hann eins og elding og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.
Aumingja Þvörusleikir að vera fjarskalega mjór. Ég held svei mér að fjarskalega sé eitt af mínum uppáhalds orðum og ég hef því ákveðið að nota það miklu meira á nýju aldursári ... veit samt ekki alveg hvað það þýðir en sýnist það ávalt geta komið í stað mjög.
Ég var fjarskalega lasin á afmælisdaginn minn. Mamma og pabbi og Tóta og Matti sendu mér fjarskalega mikið sælgæti. Ég borðaði nándar nærri því ekki neitt af því. Nú er ég fjarskalega hress og ætla að borða fjarskalega mikið af því í kvöld.
Mér finnst fjarskalega leiðinlegt að vera svo fjarskalega langt í burtu frá ykkur öllum á aðventunni en þá get ég að minnsta kosti setið ein að kræsingunum.

5 Ummæli:
fjarskaleg ertu skemmtileg gústa mín. og fjarskaleg sakna ég þín mikið...
Fjarskalega er fjarskalega skemmtilegt orð. Mikið fjarskalega hlakka ég til að hitta þig á nýju ári.
ég held að það þýði eitthvað sem í fjarska virðist svo og svo þannig að td nammið var gott í fjarska...en kannski er þetta tómt bull í mér :)
Fjarskalega : mjög mikið, ákaflega - skv orðabók menningarsjóðs.
Einkar er nýja uppáhaldsáhersluorðið mitt, nema ég gleymi alltaf að nota það. En mér finnst einkar leitt að þú hafir verið laaasin á afmælinu þínu og mig langar einkar mikið að nota einhverja Harry Potter-tækni til að galdra þig heim um jólin mín kæra.
Hvort er "fjarska fallegur maður" þá mjög fallegur eða bara fallegur í fjarska?
Leitt að hinn konunglegi póstur skuli vera með eitthvað vesen, þetta hlýtur að skila sér á endanum.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim