Gleðilegt ár kæru vinir!Við höfðum það óskaplega gott um jólin eins og þessar pínulitlu myndir bera með sér. Við fórum í nokkra bíltúra og göngutúra (ég með nýju vettlingana sem ég fékk frá Hildi og í úlpunni frá Tótu og Matta), flugum flugdrekum og töluðum í símann. Neðsta myndin er af Chris þar sem hann hefur tekið upp á því snjallræði að vefja sér inn í flísteppið sem við fengum frá ma og pa og fara svo í lopapeysuna sína utan yfir, skella svo á sig húfu og fara svo að læra. (Annars vorum við dugleg að kynda og löt að læra um jólin og myndin því ekki dæmigerð.)
Í jólamatinn var nýsjálenskt lamb sem bragðaðist sem íslenskt og svo var heimagerður ís og sherry triffle (að hætti Breta, með rauðu jelly og svoleiðis) í eftirmat. ummmm. Við eigum einn poka af lakkrísreimum eftir, eitt eitt sett og 10 saltaða sjóræningjapeninga og ég hef einsett mér að borða það allt í kvöld áður en að þrettándinn skellur á.
Mömmukökurnar runnu út eins og heitar lummur en sömu sögu er ekki að segja um sörurnar, sem urðu að einni stórri söru sem var í eftirmat á áramótunum. Chris fékk algjöra klígju og neitaði að klára skammtinn sinn og eftir að hann var búinn að tala um "the little pockets of salt" sem væru í neðra kreminu þá missti ég aðeins lystina. Á maður að nota ósaltað smjör í herlegheitin? Bíttar ekki diff úr þessu svosem.
Takk fyrir allt gamalt og gott - ég hlakka til að sjá ykkur á nýja árinu!

6 Ummæli:
Blessuð Ágústa mín - gleðilegt ár og takk fyrir það gamla. Það er alltaf gaman að lesa frá þér bloggið. Hlakka til að hitta þig í eigin persónu þegar sól fer að hækka á lofti.
sigga mos.
en kósí hjá ykkur.
veit ekki með smjörið... ég kaupi alltaf bara venjulegt smjör, hef ekki hugmynd hvort það sé saltað eða ekki. annars hefði ég verið til í að sjá þessa risasöru, en ég er alveg viss um að hún hafi verið mjög ljúffeng, þrátt fyrir the little pockets...
hlakka til að sjá þig á þessu ári!
gleðilegt árið elsku gússan mín og takk fyrir öll gömlu góðu!
gaman að sjá myndirnar þínar, ofsa kósý hjá ykkur greinileg - ekki síst latínugallinn hans Chris, hann er æði :)
Gleðilegt ár elsku ágú. Hljóma vel jólin þín. Gaman að heyra í þér áðan og sjá þig hér, hlakka svo til að sjá þig á nýju ári
Gleðilegt ár elsku Ágústa! Takk fyrir þau gömlu yndislegu.
Við Jón gerðum líka heiðarlega tilraun til baksturs fyrir jólin og lentum einmitt í því sama með lakkrístoppana (marengsdrulla) - þeir runnu saman í einn og festust í þokkabót við smérpappírinn. Ég sem hélt að maður yrði seif með svoleiðis. Smelltu einum á sauðabóndann í flísteppinu!
Gleðilegt ár, elsku Ágústa mín og takk fyrir öll þau gömlu og ofsa góðu.
Hlakka til að sjá þig í vor. ég kíki alltaf reglulega á bloggið þitt og hef mikið gaman af. kannski ég verði duglegri að kvitta fyrir heimsóknirnar á nýja árinu:)
kv. Helga
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim