þriðjudagur, desember 02, 2008

Gleðilega aðventu öll saman. Ég vona að þið hafið átt góða helgi og huggað ykkur við aðventukransagerð. Sjálf þurrkaði ég úr gluggakistunni og skellti aðventuljósinu í samband. Aðventuljós eru ekki nærri því eins almenn hér og á Íslandi. Á síðustu aðventu ráku vinir mínir upp meðalstór augu og spurðu afhverju við værum með þýsk jólaljós. Ég svaraði "iii þetta eru ekki þýsk jólaljós þetta eru Gyðinga ljós," en ég held að þeim hafi ekki fundist ég svara spurningunni á fullnægjandi hátt.

Jólin eru sem sagt formlega á leiðinni. Skotinn virðist vera eins og Englendingurinn að því leyti að hann setur upp fullskreytt jólatré snemma á aðventunni (ég skil nú ekki hvernig þau lifa til jóla) en ég hef nú skammast yfir því bráðræði áður... Við Chris ætlum ekki að fá okkur tré vegna plássleyis en stefnum að því að fylla litlu stofuna af gestum, spilum, mat og drykk.

Í takt við boðaða komu jóla snjóaði hér og frysti í nótt svo að úti er glerhált. Chris hafði á orði að honum fyndist ég vera þjóðerni mínu til skammar á leiðinni í skólann þar sem ég hékk í handleggnum á honum á rennisléttum stígvélum. Íslendingar eiga jú að kunna að ganga með höfuðið hátt í hálku og að klæða sig eftir veðri. Það er bara svooo langt síðan að ég hef gengið eitthvað að ráði í hálku og ég hafði ekki hugmynd um að það væri svona lélegt grip á stígvélunum sem ég erfði frá móðu.

Bestu kveðjur heim

4 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Gleðilega aðventu sömuleiðis. Á ekki að skella í smákökur í útlandinu ? Fékkstu ekki mannbrodda með stígvélunum ?

kveðja frá Selfossi

uncle Halli

11:22 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Þú þarft nú að fara varlega í hálkunni, varstu nokkuð í nokia, þau eru nú svo sleip. Mikið held ég að það verði kósý hjá ykkur um jólin
Kv. Hildur

6:00 e.h.  
Blogger augnpot sagði...

Við Jón bökuðum smákökur á laugardeginum og fórum á jólatónleika Björgvins Halldórssonar. Mjög hátíðlegt og skemmtilegt.

Farðu nú varlega í hálkunni - bið að heilsa Chris!

10:26 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju með Afmælið elsku Ágústa, haðfu það sem allra best í dag:)

11:45 f.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim