Það er svolítið merkilegt að það eru mörg hundruð hárgreiðslu- og rakarastofur í Aberdeen. Örugglega ein á hverja 10 íbúa. Á stærstu strætunum bíður klippari við aðra hverjar dyr.
Rakarastofan sem er næst okkur er handan við hornið frá íbúðinni okkar. Í glugganum eru flöskur af elvital sjampói og hárnæringu og gular einnota bic rakvélar og í stólunum fyrir innan sitja gömul hjón og lesa blöðin. Í gær ákvað Chris að heimsækja hjónin til að losna við lokkana sína. Þau spruttu á fætur og hagræddu honum í stólnum, kveiktu á rafmagnshitaranum svo að honum yrði ekki kalt og rökuðu og klipptu fljótt og örugglega fyrir 5 pund 50 sem enduðu í lítilli læstri skúffu. Þau eru búin að reka búlluna í 24 ár... Í 24 ár hafa Aberdeen búar laðast að kaupfélagssjampóinu og einnota rakvélunum með einu blaði og treyst hjónunum fyrir hausnum á sér. Þar verð ég seint með talin!
Hárgreiðslustofan á móti þeim er vel upplýst með marglitum "Rúm höfuðs" hárvörum í glugganum og fyrir innan eru ungar snótir með skærin og klórinn á lofti. Endalaus straumur kvenna með nýblásið, skjanna hvítt hár liggur frá þeim, flestar með eyrnalokka sem eru síðari en pilsin sem þær klæðast...
Ég held að ég safni bara hári!

6 Ummæli:
Er þá Aberdeen einskonar Selfoss ? Hér eru einar 6 stofur held ég fyrir utan þær sem eru að klippa heima fyrir svart fé. Þarf endilega að sjá þessi pils sem eru styttri en eyrnalokkar :-)
Kveðja úr Krepplandi
Halli
Fáum við ekki að sjá myndir fyrir og eftir klippingu?
Kv.
Pabbi
Já, ég væri til í að sjá myndir. Klipptu hjónin hann í sameinginu?
Fyndið hvernig allir virðast fá sömu viðskiptahugmyndina í sumum borgum. Við hildur erum einmitt sammála um að brussel og leuven séu báðar yfirfullar af apótekum og í berlín er allt fullt af dónabúðum - 9 stk á milli mín og rutar!
Vá hvað mér brá þegar ég kíkti hérna á bloggið þitt Ágústa. Ég var hætt að þora að vona að hér væri eitthvað nýtt að hafa... en mikið er gott að svo sé.
Gott að við Jón tókum kick-off inn í þetta annars frekar skítlega ár... Við gátum þó allavega haldið gott partí sem var á kreppubudget í góðærinu.
Gaman að sjá myndir af hversdagnum ykkar. Gríðarfalleg planta á skrifborðinu þínu og falleg hús þarna í Aberdeen - líkt og í Edinborg.
Kram
Halló kalló
vona að sængurverið hafi þornað :)
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim