miðvikudagur, október 15, 2008

Oft hefur verið skemmtilegra að vera Íslendingur á erlendri grund. Hér hamast menn við að glotta út í annað yfir óförum föðurlandsins - með svona "ha ha ha þið eruð þá ekki öll svona sæt og kár eftir allt saman" blik í augunum. Ég á ekki við fólkið í kringum mig heldur fréttamenn og breska sjónvarpsspekinga sem virðast svei mér þá fá kikk út úr því að "Ísland sé farið á hausinn" eins og þeir smjatta á upp á hvern einasta dag. Í gær tók svo steininn úr þegar Geir H. Haarde var spurður í sjónvarpsviðtali á channel 4 hvort honum fyndist hann nú ekki skulda breskum sparifjárseigendum afsökunarbeiðni. Ég hélt niðri í mér andanum. Geir svaraði fullum hálsi, sagðist ekki hafa neitt til að biðjast afsökunar á þótt að honum þætti þetta nú auðvitað leiðinlegt eins og öllum og að hann myndi leggja sig allan fram um að finna lausn á vandanum. Ég andaði léttar. Geir sagði Ísland ekki vera farið á hausinn og benti á að fjölmargar breskar bankastofnanir væru farnar á hausinn líkt og þær íslensku, munurinn lægi í því að bankastofnanirnar á íslandi hafi verið stærri hluti af íslensku efnahagslífi en breksu bankarinr í Bretlandi. Og hana nú!! Jon Snow með sitt litríka bindi náði ekki að slá forsætisráðherran út af laginu og nú er bara að vona að Herra Brúnn og fjölmiðlar hérlendis hætti að smjatta á óförum annarra.

En talandi um smjattpatta. Ég og Chris fórum í göngutúr um helgina og ég tíndi alveg helling af brómberjum. Ég er viss um að ég hefði ekki þekkt þessi ber með nafni ef að það væri ekki fyrir Boga brómber og vini hans í Smjattpattalandi - Lúlla lauk, Pálu peru og félaga.
Og á þessum síðustu og verstu stendur til að sulta berin. Ég hringdi í móðu sem sagði mér að ég þyrfti hleypi !? Ég gaf næstum upp alla von... hvar finnur maður hleypi í breskum súpermörkuðum?? En viti menn, Bretinn er nú ekki alslæmur. Hann hefur fundið upp sultusykur - sem er, ef ég skil sultugerðarfræðin rétt, sykur með hleypi!! æ jæja, ó ekkí. Ég sendi ykkur heimagerða brómberjasultu ef Ísland fer á hausinn.

5 Ummæli:

Blogger Tóta sagði...

Ágú págu, ég þigg brjómberjasultu. Þú ættir svo kannski að senda Geir eina dollu með hvatningarorðum! Hann myndi ábyggilega borðana með bestu list. Talandi um smjattpatta við stelpurnar skemmtum okkur konungslega þegar við rifjuðum upp Mr.Men söguna þína um daginn. Muhahahaha, ertu mikið að lesa þær á skrifstofunni?Þá myndi álitið á íslenskum fræðimönnum kannski vera í stíl við álitið á landinu almennt ;)

10:22 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

mmmmm, mig langar í brómberjasultu. Rosalega ertu myndarleg að fara að sulta kona. Mr. Men sögurnar klikka aldrei:)

11:40 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

enginn smá myndarskapur!
sendirðu líka til þýskalands?

3:04 e.h.  
Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

ji hvað þú ert dúleg, ekki bara að sulta heldur líka að blogga. mig dreymdi í nótt að við stálumst til að halda partí í hjallatúni (amma og afi bjuggu þar sko ekki halla emils) og þú vildir ekki hjálpa mér að taka til eftir það. djöfull var ég fúl. hlakka til að heyra í þér um helgina!

10:08 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

ég er mjög ánægð með þennan nýfundna bloggkraft þinn;) þú ert officially orðin fullorðin fyrst þú ert farin að sulta, það er mitt viðmið..
gangi þér vel og ég hlakka til að lesa meira frá þér.
kv.Helga Ben

2:24 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim