fimmtudagur, október 09, 2008

Það er bara þrælskemmtilegt að búa í Aberdeen fyrir utan hvað það rignir mikið. Upp á hvern einasta dag nema í gær.

Við erum ekki búin að hafa haggis í matinn en Chris pantaði sér það á pubnum þegar við vorum hér að leita að íbúð. Hann hámaði það í sig með góðri lyst ásamt kartöflumús og nípum. Mér finnst það ekki gott og kýs heldur íslenskt slátur, með soðnum kartöflum, rófustöppu og hvítri sósu.
Ég drekk ekki heldur wiský en það má nú kannski ráða bót á því (ég er nú farin að borða ólívur, ansjóvur). Hvað fótboltann varðar þá held ég hreinlega að við verðum að skella okkur á the Pittodrie (heimavöll Aberdeen) þar sem hann er nú bara steinsnar frá okkur. Ég held samt að við bíðum kannski eftir sérlega spennandi leik...

Annars er nú ekki mikið að frétta bara kreppa kreppa kreppa hér sem annars staðar. Ísland er alltaf í fréttunum á BBC. Það er huggulegt að vakna við tilraunir þula við að bera fram nöfn bankastjóra, stjórnmálamanna og hausfarinna bankastofnanna. Í gær var það Landsbankinn (sem þeim tókst bara nokkuð vel að bera fram) en það var verra með Kaupþing banka í morgun. Ég skildi fréttina þó vel en blikkaði ekki einu sinni, ég er orðinn svo vön - ég er meira að segja hætt að hækka í viðtækinu þegar fréttin byrjar: "Iceland´s economy suffered....."

Eftir morgunmat byrja ég daginn á að reikna gengi og sjá hvað ég hef tapað miklum peningi yfir nóttina. Það er lúmskt spennandi leikur og oftast nær niðurstaðan að vekja mig vel og jafnvel til að blóta svolítið í morgunsárið - sem er óneitanlega hressandi. En ég hef það nú ekki slæmt. Bráðum kemur styrkurinn minn í hús og hann er reiknaður í pundum drottingarinnar sem eru nú skömminni skárri en krónu lúsin á þessum síðustu og verstu.

Ég vona að þið hafið öll í ykkur og á. Ef í harðbakkann slær þá get ég sent dósir af bökuðum baunum og niðursoðna kjöthleifi til ykkar og jafnvel haggis kepp og wiský fleyg þegar nær dregur jólum!

4 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Já þú verður nú að fara að drekka wiský kona.
Kannast við þetta með reikninginn í morgunsárið. Merkilegt hvað maður getur tapað miklum peningum sofandi:)

7:38 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

þið skellið ykkur bara á Aberdeen vs. Hearts. Það er íslendingur í Hearts liðinu. Svo fáiði ykkur viskí á eftir.

Halli

12:56 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Enn hvað er gaman að þú sért byrjðu að blogga mín kæra. Hlakka til að lesa næstu færslu. Var reyndar að pæla að hringja í þig á morgun, heyrumst þá kv. Ólöf

6:52 e.h.  
Blogger Tóta sagði...

helluuu hver vann Vinaleikinn?
kv Tóta

7:32 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim