fimmtudagur, október 02, 2008


Jæja, nú hefur síðan hlotið nýtt útlit og nafn í tilefni af búferlaflutningum norður í land. Ég er flutt hálfa leiðina heim til Íslands, til Aberdeen.

Við Chris fluttum inn í litla íbúðarskonsu nálægt ströndinni og fótboltavellinum og líkar bara alveg ágætlega við okkur. Veðrið er íslenskara en ég hef átt að venjast á Stóra-Bretlandi. Það rignir úr öllum áttum í senn svo að regnhlífar eru vita gagnslausar en inn á milli eru ískaldir sólskinsríkir dagar, alveg eins og á Íslandi?!

Ég byrjaði formlega í skólanum í gær. Ég fékk skrifborð og tölvu í deildinni og deili herbergi með öðrum doktorsnemum, þau virðast öll vera hið vænsta fólk. Það sem ég er búin að gera er að senda tölvupóst til allra sem ég átti að vera löngu búin að vera í sambandi við, færa bókahilluna til og setja bækur í hana, hengja upp kort og ljósmyndir og drekka te. Og svo auðvitað blogga.... það er svolítið erfitt að byrja.

Hér kannast allir við Ísland og enginn rekur upp stór eyru né augu. Niðri í kjallara hanga að minnsta kosti tvo stór Íslandskort og konan sem "býr" þar sagði mér að ég væri velkomin þangað að skoða þau þegar ég fengi heimþrá. Ég er víst ekki fyrsti Íslendingurinn til að ramba inn í þessa byggingu.

Það búa um 200.000 sálir í Aberdeen, jafnmargar og í Reykjavík. Borgin hefur þó ívið meiri stórborgarbrag á sér og er þekkt fyrir það að hér eru öll húsin úr graníti sem gefur henni skemmtilega gráan blæ. Það eru allir velkomnir í heimsókn, eins og fyrri daginn. Ég hef pláss fyrir a.m.k tvo á svefnsófanum í stofunni og aðeins neðar í götunni er Lillian cottages og af nafngiftinni að dæma er örugglega boðið upp á góðar veitingar þar og brauðtertur í öll mál. (Ég lofa að senda ekki gesti á Faulty Towers eins og síðast ;))

Held ég fái mér meira te....

ágústa

5 Ummæli:

Blogger Unknown sagði...

Ég óska ykkur góðra stunda í Aberdeen og hlakka til að fylgjast með lífi ykkar þar.
Bestu bestu kveðjur,
Ásta Björk, Leiden

7:09 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Jeij, mikið var ég glöð að sjá hér færslu:)
Gangi ykkur allt í haginn í Aberdeen.
Hringi svo í þig fljótlega við tækifæri:)

2:23 e.h.  
Blogger Þórhildur Hagalín sagði...

vá hvað ég væri til í skoska brauðtertuveislu!
ég, gvendur og hildur erum að fara að kúra uppi í rúmi, borða ostapopp og lakkrís og horfa á klovn :)
sakni sakn!

9:20 e.h.  
Blogger Tóta sagði...

hæhæ

ÞEtta er mjög fornleifalegt look á síðunni...til hammmara mað það!
Rosalega held´eg að það sé gaman að búa í aberdeen, komum pottþétt í heimsókn -kannski næsta haust?? Túddílú Tóta syss

10:01 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Síðan lítur vel út,svona pergament útlit er bara flott. Mann langar bara í viskí og haggis þegar maður hugsar til Skotlands. Á ekki að skella sér á leik með Aberdeen ?

Góðar kveðjur frá Selfossi

Halli og co.

10:54 f.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim