laugardagur, maí 26, 2007








Ætli þetta verði ekki síðasta færslan mín frá Bristol... bú hú hú. Ég sit hér í miðjum ruslahaug og reyni að gera upp við hvaða hluti ég nenni og vil flytja til Íslands, hvað á betur heima í sorptunnunni og hvað einhver annar gæti hugsanlega fundið notagildi í. Eruð þið ekki öfundsjúk?

Hvað á ég að gera við allar tímaritsgreinarnar og glósurnar úr mastersnáminu? Á ég einhvern tíma eftir að glugga í þær aftur? Þær vega að minnsta kosti 57 kílógrömm... þarf ég að eiga 11 skópör - ég hef nú bara tvær fætur. hmmmm

Síðasti dagurinn minn í vinnunni var í gær og ég var kvödd með tilþrifum á sólríkum pöbb og er pínu illt í höfðinu í dag. Þarf þó að toga upp um mig sokkana því í kvöld stendur til að kveðja vinahópinn formlega... lambakjöt hjá Alice og súpa hjá Lucy í eftirmat. Læt fylgja nokkrar myndir frá gærkvöldinu sem byrjaði klukkan fjögur og entist til rúmlega tvö. Njótið vel og ég sé ykkur svo flest eftir tæpa viku.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim