
Hvernig lin-sýður maður egg?
Um daginn smakkaði ég í fyrsta sinn það sem Bretinn kallar hermenn. Það er víst vinsæll morgunmatur, sérstaklega fyrir börn. Fyrst ristar maður brauð, betra hvítt en brúnt, smyr það með meðal þykku lagi af smjöri og sker það í strimla. Svo lin-sýður maður egg (líklega er best að gera það á meðan brauðið er að ristast). Ristuðu brauðstrimlunum er svo dýft í eggið og borðaðir með bestu lyst.
Þetta er prýðis morgunmatur með fyrsta tebolla dagsins. Þegar ég upplýsti að ég hafði ekki áður dýft ristabrauði í egg, þ.e. borðað hermenn, var ég spurð: "hverju dýfið þið þá í eggin ykkar á Íslandi". Já, hvurslags hugmyndaleysi er það hjá þjóðinni að borða bara eggin sín með skeið en dýfa engu í þau... (eða skrifast það eingöngu á mig?).
Til að gera langa sögu stutta hef ég verið að reyna að lin sjóða egg, en með litlum árangri. Hversu lengi á eggið að vera í pottinum? Ég hélt að það tæki þrjár mínútur að lin-sjóða egg en hef nú prufað það tvisvar. Fyrst með því að setja eggið í kalt vatn og taka tímann eftir að suðan kom upp og svo með því að setja eggið ekki í pottinn fyrr en farið var að sjóða... en allt kom fyrir ekki. Í fyrstu tilraun varð eggið harðsoðið og svo vart-soðið. Nú treysti ég á ykkur, vinir og vandamenn að leiðbeina mér á þessari braut eggja eldamennsku, svo ég geti borðað fleiri hermenn!

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim