miðvikudagur, maí 02, 2007


Get nú ómögulega látið líða jafnlangt á milli færsla og síðast, eftir að ég lofaði öllu fögru.


Það hefur nú svo sem ekki mikið drifið á daga mína síðan síðast. Ég er hætt að vinna niðri í bæ í bili og teikna steina eins og ég eigi lífið að leysa fyrir utan Bristol - á þriðjudaginn fæ ég svo að fara aftur niður í bæ, í þetta sinn til að grafa upp beinagrindur, haldið ekki að það verði gaman?


Bretar eru svo ansi sniðugir, þeir færðu fyrsta maí fram á sjöunda svo framundan er löng helgi. Ég, Matti og Tóta ætlum að bruna upp til Liverpool í heimsókn til Sophie. Er pínu stressuð fyrir ferðinni upp eftir þar sem ekkert okkar hefur þeyst á breskum vegum fyrr.... en það ætti nú allt að reddast. Við komumst að þeirri niðurstöðu að það er ódýrara fyrir okkur að leigja bíl yfir heila helgi og borga bensín en að ferðast með lestinni svo við verðum bara að bíta í það súra og reyna að minnka "koltvísýrings fótsporið" okkar með öðrum hætti. Þó ég sé með netta fætur grunar mig að fótsporið mitt sé öllu stærra en þörf er á.... sérstaklega eftir að ég skildi gasofninn minn í gangi í heilan sólarhring um daginn, eftir að hafa eldað gómsæta pizzu.... og gas-kyndinguna á í sólarhring, alveg óvart, í steikjandi sól og hita!! Með þessu áframhaldi á ég ekki eftir að eiga nægan kvóta til að fljúga yfir Atlantshafið.


Skamm skamm.... betur má ef duga skal!


0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim