
Síðasta vika var með allra skrýtnasta lagi. Eldsnemma á mánudagsmorgun héldum við Chris af stað til Salisbury eins og venja er orðin. Þar hitti ég nýja yfirmann minn sem ég skildi skunda með alla leið til Cambridgeshire og vera þar í viku, bara við tvö. Mér leist svo sem ekkert illa á kallinn svoleiðis, svona um fimmtugt, kinnfiskasoginn með úr sér vaxna prins Valíant klippingu, sígarettu hangandi út úr munnvikinu og mjórri en kústskaft. En mér skildist fjótt á brosum viðmælenda minna þegar ég sagði þeim frá væntanlegri viku að ekki var allt með felldu. Mér var sagt að hann væri kallaður illa teiknaði Tinni (ísl. þýð) drykki mikinn bjór en sæist aldrei borða.
Við héldum af stað í 4 tíma bíltúrinn og fljótt kom í ljós að við eigum ekki neina óskaplega samleið við Tinni, held að við höfum skiptst á um það bil 5 orðum á fjórum klukkustundum og ekki tók betra við þegar á áfangastað var komið. Eftir fyrsta vinnudaginn vildi hann stoppa á ölstofu og þar sátum við tvö og góndum út í loftið þann tíma sem það tekur mann að svolgra í sig einum bjór. Við fórum ekki aftur þangað.
447 blaðsíðna bókin sem átti að endast mér út vikuna var full lesin á þriðjudagskvöldi og þá var ekki annað í stöðunni en að fara og sitja fyrir framan sjónvarpið með "rúm og morgunmats" konunni. Mér var svolítið kalt í stofunnni hennar svo hún sótti sæng og breiddi yfir mig og stakk hornunum bakvið mig og undir fæturna á mér og sagði: "ég veit að þú ert með masters gráðu í fornleifafræði en þú lítur bara út fyrir að vera 12 ára og ég bara ræð ekki við mig". Og þá voru ekki margir eftir sem ég gat talað við svo ég þagði fram á föstudag....
Til að bæta upp fyrir vikuna hef ég átt yndislega helgi með góðum vinum og spjalli fram á rauða nótt!
Myndin að ofan var tekin í sumar af Hjallatúns barna- og barnabarnabörnum, læt hana fylgja með þar sem hún er andhverfa síðustu viku, full af lífi og fjöri og fólki!!

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim