laugardagur, mars 10, 2007

Sælt veri fólkið!

Ég er búin að vera á fleygiferð um landið síðustu vikurnar, búin að eyða fleiri fleiri klukkustundum í rútum, lestum og bílum... en nú er allt að komast í fastar skorður aftur. Næstu fimm vikurnar verð ég að grafa fyrir nýrri flugbraut á Stansted og svei mér þá ef það er ekki freistandi að hendast inn í flugstöðvarbygginguna og kíkja út í heim.
Annars er bara allt gott að frétta það er farið að vora í Englandi og ég er búin að svitna eins og jólasteik í síðu drengja nærbuxunum sem ég fékk í Álafoss búðinni á spott prís um jólin, held að það sé kominn tími til að endurskoða vinnugallann og skipta ullarfatnaðnum út fyrir léreftsflíkur. Mér finnst ég svo sannarlega eiga þetta sólskin skilið eftir að hafa næstum kalið á fingrunum í "snjóstorminum" sem gekk yfir eyjunna í febrúar. Þið getið sem sagt byrjað að öfundsjúka mig - mér skillst að það snjói enn þá á ykkur rýjurnar mínar. Ég kem svo heim í júní með sólskinið í annarri.....

bless í bili
ps. hvað varðar harry potter myndir þá þykir mér miður að tilkynna að ég á ekki neina einustu, pabbi var ljósmyndari dagsins, hann ætti að eiga eins og silljón...

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim