



Nokkrar myndir úr vinnunni minni. Bara svona upp á gannið.
Ég kem heim á degi heilags Þorláks og hlakka mikið til. (mamma ef þú lest þetta má ég þá fá grjónagraut og lifrapylsu í kvöldmatinn í staðinn fyrir skötu?).
Annars ekki mikið að frétta, Tóta og Matti voru í heimsókn og hljálpuðu mér við jólagjafainnkaup meðal annars, það var feikna fjör og svo fékk ég eitt stykki ágætis einkunn fyrir ma ritgerðina mína (monti mont). Kennarinn minn hringdi í mig á laugardagskvöldið og það var skemmtilegt að hafa tótu litlu og matta hjá sér til að skála.
Ég sé ykkur nú flest bráðum svo ég læt þetta duga í bili.
yfir og út

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim