Svei mér þá alla mína daga, sjaldan hefi ég verið jafnlöt að blogga.... og hef svo sem enga einustu afsökun!
Ég byrjaði í nýrri vinnu í byrjun mánaðarins, það var frekar erfitt að kveðja gömlu vinnufélagana en það gleymdist næstum alveg þegar ég stillti vekjaraklukkuna á hálf átta í staðinn fyrir korter í fimm næsta mánudagsmorgun. Nú skelli ég í mig múslíinu og rölti niður af hólnum í vinnuna á hverjum degi og er svo komin heim aftur fyrir Nágranna (þ.e. þegar ég asnast ekki á pubbinn eða eitthvert kaffihús til að eyða hýrunni).
Það er komið svo mikið sumar í Bristol, ég brúnka og brúnka með hverjum deginum og er búin að borða grillmat tvisvar. Tóta og Matti komu yfir páskana og við grilluðum yndælis svínarif frá slátraranum. Þau skötuhjú voru svo hjá mér í rúma viku og það var sérlega gaman að hafa þau hjá sér og við brölluðum margt skemmtilegt, fórum í dýragarðinn, á tónleika í skipi, spiluðum frisbý og pool.... og svo fékk ég grilluð bjúgu á laugardaginn eftir að hafa reytt þyrnirunna þangað til blæddi úr handleggjunum á mér í garði vinafólks míns.
Annars er farið að styttast ískyggilega í heimför og ég er aðeins komin með í magann, kvíði og tilhlökkun í senn - það verður ekki á allt kosið. Ég á að vera mætt í vinnu í Skálholti 4. júní svo ég auglýsi hér með eftir fólki sem vill koma í heimsókn til Bristol og hjálpa mér með hafurtaskið heim. Viðkomandi þarf að vera sterkur með eindæmum, búa yfir nokkurri skipulagsgáfu og auðvitað skemmtilegur og góður viðkynnum.
Nú lofa ég og sárt við legg að vera duglegri að blogga,
ástarkveðjur

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim