mánudagur, febrúar 19, 2007

sælt veri fólkið!

svei mér þá hvað ég hef verið löt að blogga.... og löt yfir höfuð. Ég er flutt inn í nýja íbúð, bý ein á jarðhæð í tveggja hæða húsi uppi á hól. Núna á ég hlýja stofu með koju í horninu, pínulítið eldhús og baðherbergi sem er svolítið þreytt og myglað. Það eru tveir stórir gluggar í stofunni með viðarhlerum, sem vísa út í sólríkan (stundum) garð með þvottasnúrum og hjólakofa. Ég hef aðgang að hjóli sem er svo stórt að ég þarf að hjóla undir stönginni, sem ég treysti mér reyndar ekki til í bristolskri umferð.

Mig langar að setja inn myndir af hosiló þegar ég hætti að vera löt. Núna er ég að reyna að mana mig upp í að ryksuga því á eftir koma mamma og pabbi og amma og afi og hildur og tóta og matti í heimsókn því á morgun er loksins komið að útskrift!

Held að ég sé farin að verða einum of bresk kannski, Bretar ryskuga afar sjaldan, þeim líður held ég best með ló upp að ökklum. Um daginn var ég að hjálpa vini mínum að taka til fyrir partý og sópaði eldhúsgólfið hans, þegar ég bað um fægiskóflu sagði hann "ég er ekki viss um að ég eigi neina, sópaðu þessu bara undir eldavélina".

Ég efast ekki um að mamma og amma geti komið góðum íslenskum gildum aftur inn og leiðrétt skítastuðulinn, þangað til ætla ég bara að halda áfram að sötra kaffi og standast freistinguna á súkkulaðikökunni sem bíður í ísskápnum... það er nú verk útaf fyrir sig.

Vonandi hafið þið það öll gott á klakanum nú þegar daginn er farið að lengja!
Bestu kveðjur úr rykinu í Bristol!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim