
Tvær myndir frá síðasta sumri, önnur er tekin í byrjun júní í Bristol, hin í júlí á Íslandi.
Var að rifja upp hvað það var yndislegt að skipta kjólnum út fyrir gammos og húfu síðasta sumar. Annars var ég kannski aðeins of fljót á mér að monta mig yfir sólskini í síðustu færslu þar sem það hefur kólnað ískyggilega þessa helgi og spáir snjókomu á þriðjudaginn. Ég náði mér samt í góðan lit í síðustu viku og sólbrann meira að segja á upphandleggjunum (þar sem mér datt ekki í hug að pakka sólaráburðinum aðra vikuna í mars).
Það er fullt af fólki að hjálpa mér að grafa fyrir flugbrautinni og ég nota hakann nú meira en múrskeiðina, þannig að þetta ætti að hafast (annars erum við svo sem ekki að grafa fyrir henni allri, bara rannsaka svæðið þar sem hún mun koma til með að vera). Ég deili herbergi með stelpu sem er forfallin fótboltabulla. Hvern einasta morgun vakna ég við da da da daradda da da da, og byrja daginn á að hugsa um Bjarna Fel.
Svo er einn Skoti að vinna með mér (reyndar fleiri en einn) og við tókum tal saman og hann sagði mér að íslenski þjóðsöngurinn væri eitt af þremur uppáhalds tónverkunum hans, svo tók hann upp ipodinn sinn og viti menn allt í einu á pub í suður Englandi glumdi þjóðsöngurinn í eyrum mér í flutningi einhvers kórs. Ég verð nú eiginlega að viðurkenna að það snerti einhverja þjóðernistaug og ég fékk pínu hroll en held samt að ég muni seint setja sönginn á spilarann minn og hlusta á hann í strætó.
Annars er bara allt gott að frétta, sjónvarpið mitt bilaði reyndar í gær og ég hringdi í panikk í bæði Þórhildi og Tótu ... jámm eitt og hálft ár í útlöndum breytir því ekki að það er best að hringja í Liddu til Þýskalands eða Tótu til Íslands/nú Bornemouth til að leysa hversdagsleg vandamál en það er allt komið í lag núna.
Hafið það sem allra best þangað til næst!

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim