Á föstudaginn var ég svo dugleg í vinnunni að ég fékk að fara heim á hádegi. Ég var gríðarlega glöð sérstaklega þar sem Rudi bauð mér far á lestarstöðina. Ég keypti miðann minn og fór á réttan brautarpall og þá mundi ég allt í einu að ég hafði skilið símann minn eftir inni á klósetti í vinnunni. Ég hljóp eins of fætur toguðu, inn í leigubíl, upp í vinnu, inn í leigubíl og aftur á brautarpallinn og náði lestinni, en var mörgum krónum fátækari.
Þegar ég kom heim til Bristol fórum við Chris á búðarölt. Ég fann tvo kjóla í einni búð og sagði Chris að ég ætlaði að máta þá og bað hann um að láta mig vita þegar hann færi út úr búðinni og inn á kaffihúsið við hliðina, þangað sem förinni var heitið. Ekki vildi betur til en svo að ég festist í kjól númer eitt. Rennilásinn renndist inn í efnið á versta stað á kjólnum, þar sem maður nær varla, hvorki með því að teygja sig aftur fyrir bak né yfir öxlina. Sama hvað ég reyndi, reygði mig og beygði rennilásinn haggaðist ekki - og aldrei kom Chris. Á endanum þurfti ég að fara hálfklædd út úr mátunarklefanum og hóa í búðarkarlinn sem renndi kjólnum niður fyrir mig á miðju búðargólfinu. Laus úr prísundinni fann ég svo Chris að svolgra í sig heitt súkkulaði á kaffihúsinu......
Ég hefði kannski betur bara verið í vinnunni til fimm eins og allt venjulegt fólk!

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim