laugardagur, desember 09, 2006



Jólin koma, jólin koma... og þá svo man ég ekki meir...

Orðið frekar jóló í Bristol og í Bognor þar sem ég er nú flest alla daga. Jólatréi hefur verið komið fyrir inni í stofu (því hér heldur fólk að tréð sé fyrir allan desember eins og hver önnur jólaskreyting) og allt bara afar kósý.

Búið að rigna og rigna. Fátt er yndislegra en að vakna við regnið sem lemur á gluggann, hlusta á fagra tóna vekjaraklukkunar og vita að deginum muni vera varið úti á túni í um það bil átta klukkustundir og fátt er fyndnara en að sjá klósett fjúka um koll, sem gerðist fjórum sinnum í síðustu viku - skítur út um allt og hvergi hægt að pissa nema í sig.

Þegar ég kom heim í gær hélt ég upp á aðgang að vindheldu vatnssalerni í góðra vina hópi. Við borðuðum tælenskan mat, drukkum suður amerískt vín og reyktum píputóbak. Ég fékk nefninlega pípu í snemmbúna afmælisgjöf. Hér að ofan sést ég munda pípuna inni í eldhúsinu mínu á 3. hæð til hægri. Jim er mér á hægri hönd og Chris er vinstra megin við mig.


0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim