Það er ekki fyrr komin nóvember fyrr en það er næstum komin desember. Tíminn líður skuggalega hratt þessa dagana og óðum styttist í jól, Íslandsför og áramót. Ég er orðin fullorðin og hef ekki eitt einasta jólapróf til að stressast yfir eða verkefni að skila, en á móti kemur að jólafríið mitt er lítið sem ekkert. Ég kem heim á Þorláksmessu og fer af landi brott þann 4. jan en allir verða að fullorðnast einhvern tíma.
Mér hefur gengið bölvanlega að koma Tjallanum í skilning um að ég sé fullorðin. Í síðasta mánuði var líkt og Tony Blair hefði sent öllum búðaeigendum og barþjónum mynd af mér og logið til um aldur minn. Endalaust biðja þau mig um að sýna þeim skilríki (NB maður þarf bara að vera 16 í Engaldi til að kaupa tóbak og 18 til að kaupa áfengi). Lítil ljóshærð, svolítið hrukkótt búðakona beit svo höfuðið af skömminni á fimmtudaginn þegar hún, án þess að biðja mig að sýna sér skilríki, staðhæfði í svona mömmu/ömmu tón "þú veist að ég get ekki selt þér þessa rauðvínsflösku, elskan". Ef einhver ykkar þekkir til krema sem gera mann hrukkóttan þá myndi ég gjarnan vilja heyra frá ykkur!
En talandi um að verða fullorðin, hún Rut mín og Stebbi eignuðust son 24. nóv. Maður verður nú ekki mikið fullorðnari .... Til hamingju elskurnar mínar, hlakka til að sjá ykkur öll þrjú um jólin.
ást og kossar frá vætusömum eftirmiðdegi í Bristol

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim