Brrrrrrrrr
Það er skollinn á vetur hjá Tjallanum. Húsið mitt er eins og frystikista, kaldara inni en úti. Á föstudagskvöldið sat ég í flókaskóm og lopapeysu og drakk rauðvín til að halda á mér hita. Ég hélt að þegar líða færi á kvöldið myndi lopapeysunni vera ofaukið en þvert í mót þurfti ég að berjast við löngunina að sofa í henni. Tvö pör af sokkum, norskur ullarbolur og leikfimiæfingar er það eina sem heldur mér á lífi. Guð blessi heitavatnið í iðrum (myndi gá hvort hér ætti að vera yfsilon ef mér væri nógu hlýtt á höndunum til að flétta orðabókinni) Íslands...
verð að hætta og setja á mig vettlingana... yfir og út

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim